Norðurljósið - 01.01.1976, Blaðsíða 31
NORÐURLJÓSIÐ
31
hindúabæn, sem hann skildi ekki, heldur orðin í guðspjalli Jó-
hannesar:
,,Því að svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf sinn eingetinn
son, til þess að hver, sem á hann trúir, glatist ekki, heldur hafi
eilíft Iíf.“
Það eru margir, sem líkt og Kamar Astigi, bíða eftir þér, að
þú heyrir óp hjartna þeirra, finnir til vonleysis þeirra og bjargir
þeirra leitandi hjörtum, fylltum af þrá, með boðskap Krists. Þú
getur hjálpað 1000 með því að fórna 6 dollurum (1000 kr.).
Spurningin eina er: Viltu gera það? — Þýtt.
Gjafir má senda til ritstjóra Norðurljóssins, sem kemur þeim
áleiðis. — S. G. J.
Mistókst Guði sköpunarverk sitt?
Sæmundur G. Jóhannesson, ritstj., Akureyrk
Erindi þetta var sent Útvarpinu í Rvík., en því hafnað á þeim
forsendum, að þá átti að fara að flytja „Mannlíf í mótun“, sem
var flutt á sl. hausti (1975). En ef til vill féll erindið ekki dag-
skrárnefnd í geð.
Heilir allir hlýðendur góðir!
Við þekkjum öll heiðríkt vetrarkvöld. Snjór er á jörðu, frost í
lofti. Ósjálfrátt litum við upp. Stjörnubjartur himinn blasir við
sýn. Hrifningarkennd getur gripið okkur, ef við unnum því,
sem er fagurt og stórkostlegt. Talið geta menn stjörnur þær,
er þeir sjá með berum augum. En stjarnsjáin opnar furðudjúp
himinsins, geimsins. Þá herskara sólna telur enginn maður.
„Hver hefir skapað þetta?“ spyr Jesaja spámaður. Og svarið er:
„Hann, sem leiðir út her þeirra með tölu og kallar þær allar
með nafni.“ (Jes. 40.26.). Mikilleiki skaparans og stórkostleiki
almættis hans, visku og þekkingar blasir við sýn í stjörnustráð-
um himingeimi.
Ég er ekki fræðimaður í mannlegum vísindum. Ég stend aðeins
við vatnsbrún stöðuvatnsins stóra, sem nefnist mannleg vísindi.
En í bernsku fékk ég sjónauka, sem ég gat beint að himninum.
Heilög ritning, biblía, heitir sjónauki sá. í áratugi hefi ég notað
hann, skoðað í honum himnesk og jarðnesk efni. Með aðstoð