Norðurljósið - 01.01.1976, Blaðsíða 116
116
NORÐURLJÓSIÐ
„Börnin mín, þetta skrifa ég yður, til þess að þér skulið ekki
syndga; og enda þótt einhver syndgi, þá höfum vér árnaðarmann
hjá föðurnum, Jesúm Krist hinn réttláta.“ (1 Jóh. 2. 1.). Rétt-
læti og réttvísi er grundvöllur hásætis Guðs (Sálm. 89. 15.).
Fram fyrir þetta hásæti gengur Satan með ákærur sínar á hendur
börnum Guðs. (Opin. 12. 10.). Þau eiga þar verjanda, sem er
Drottinn Jesús Kristur. Með blóði hans, úthelltu á Golgata
oss til réttlætingar, er ákærum Satans mætt. Fyrir sérhvað það,
sem Satan finnur til að lclaga Guðs börn, hefir komið fórnar-
blóð Krists.
Kröftugra vopn en úthellt blóð Krists í baráttunni við Satan
og myrkravöld hans finnst ekki í tilverunni allri. Kænskubragð
óvinarins mikla er þögnin um blóð Krists. Það er talað um
föðurgæzku Guðs. Mikil er hún, satt er það. Margvíslega birtist
hún okkur mönnum. En opinberun skýrust um gæsku Guðs er
fórnarblóðið á Golgata, blóðið, sem veitir börnum Guðs sigur,
þegar Árnaðarmaðurinn mikli talar þeirra máli frammi fyrir
Guði og hásæti réttlætis hans.
9. „Sá, sem hcldur oss fast við Krist og smurði oss er Guð.“
Margir kenna, að vér eigum að halda oss fast við Guð. Ekki
skal því mótmælt. Barnabas, einn af kennurum kristinna manna
í Jerúsalem, var sendur til Antíokkíu. Þar hafði mikill fjöldi
manna, grískur að ætterni, snúið sér til Krists. Er hann sá það,
„gladdist hann og áminnti alla um að halda sér við Drottin með
einlægu hjarta.“ (Post 11. 19. —23.). Ekkert barn Guðs á að
vanrækja samfélag við Föðurinn og son hans, Jesúm Krist.
Eigi að síður kemur slílct fyrir. Mundi fara illa fyrir okkur, ef
ekki væri föðurhöndin sterka, sem heldur okkur við Krist.
Drottinn Jesús sagði um þá, sem trúa á hann:
„Mínir sauðir heyra raust mína, og ég þekki þá, og þeir
fylgja mér, og ég gef þeim eilíft líf, og þeir skulu aldrei að
eilífu glatast, og enginn skal slíta þá úr hendi minni. Faðir minn,
sem hefir gefið mér þá, er öllum meiri og enginn getur slitið
þá úr hendi föðurins.“‘ (Jóh. 10. 27.-29.).
Hverjum heitir Drottinn Jesús hér eilífu lífi, svo að þeir
glatist aldrei að eilífu?
Þeim, sem heyra raust hans, þeim, sem hann þekkir, þeim,
sem fylgja honum. Hvernig urðu þeir eign hans? Faðir hans,
Guð, hefir gefið honum þá. „Enginn skal slíta þá úr hendi
minni,“ sagði hann.
„Þeir geta þó alltaf slitið sig þaðan sjálfir?“ segja sumir.