Norðurljósið - 01.01.1976, Blaðsíða 177
NORÐURLJÓSIÐ
177
Ég mun aldrei framar aðvara þig.‘ En er ég hafði lagt höndina á
dyrahúninn, virtist Guð hrópa til mín: ,Þetta er þín síðasta að-
vörun! Það er nú eða aldrei!1 Ég sneri við og hljóp alla leiðina
á samkomustaðinn til að hitta þig. Ó, ég verð að frelsast i
kvöld.“ Þetta kvöld gaf hann sjálfan sig Kristi, og hann fór
heim með frið og fyrirgefningu. Ég efast ekki um, að Guð hafi
í raun og veru talað til hans eins og hann sagði.
(„The Sword of the Lord, 1/12 72.).
Hví var Kain hræddur um líf sitt?
Telja má líklegt, að lesendur allir þekki þá sögu, er Kain
myrti Abel bróður sinn. Þá talaði Jahve til hans og spurði:
„Hvar er Abel bróðir þinn?“ Kain greip til lyginnar og kvaðst
ekki vita það. Drottinn sagði þá við hann: „Blóð bróður þíns
hrópar til mín af jörðinni. . . . Landflótta og flakkandi skalt þú
vera á jörðunni. . . .“
Þegar Kain heyrði dóm sinn, að hann ætti að vera landflótta
og flakkandi á jörðinni, þá virðist hafa gripið hann hræðsla um
líf sitt. „Hver, sem hittir mig, mun drepa mig,“ sagði hann.
Hvers vegna greip þessi hræðsla Kain? Voru nokkrir menn
á jörðinni þá, nema hann og foreldrar hans, þau Adam og Eva?
Þegar sagt er frá sköpun manns og konu í 1. Mós. 1. 26.-28.,
þá lesum við þar, að Guð sagði við þau: „Verið frjósöm, marg-
faldist og uppfyllið jörðina." Getur ekki verið, að þau Adam
og Eva hafi hlýtt þessu boðorði betur en hinu, að neyta ekki
ávaxtar skilningstrés góðs og ills?
Við lesum í 1. Mós., 4. 23.-25.: „Og Adam kenndi enn af
nýju konu sinnar, og hún ól son og kallaði hann Set; því að nú
hefir Guð, kvað hún, gefið mér afkvæmi í stað Abels, þar eð
Kain drap hann.“
Við lesum ennfremur í sömu bók, 5. kafla. 3. grein: „Og
Adam lifði hundrað og þrjátíu ár; þá gat hann son í líking sinni,
eftir sinni mynd, og nefndi hann Set.“
Ef þeir Kain og Abel fæddust sem tvíburar („hún fæddi
annað sinn . . . Abel), þegar þau Adam og Eva voru um það bil
ársgömul — þau voru sköpuð fullvaxta fólk — þá líða 129 ár,
þangað til Set fæðist. Hvað skyldu þau Adam og Eva hafa getað
átt mörg börn á því tímabili?