Norðurljósið - 01.01.1976, Blaðsíða 95
NORÐURLJÓSIÐ
95
Hvað kemur næst fyrir heiminn?
Breytingar og framfarir gerast daglega. Dásamlegar upp-
götvanir, nýjar hugmyndir koma á hæla hverrar annarrar, og
það með slíkum hraða, að brátt virðist ekkert eftir til að furða
sig á. Þetta á sér einkum stað á sviði véltækni. Ótrúlega hratt
er farið á landi, legi og í lofti. Náðst hefir meiri en 1600 lcm
hraði með mönnuðum flugvélum. Ef svo Concord þotan fer að
fljúga með 2400 km hraða á klukkustund, gæti hún lagt af stað
frá Lundúnum á fyrstu stundu ársins 1976, en komið til New
York áður en 1975 endar. Er þetta ekki ruglandi?
Vandræði mikil eru það, að framfarir á öðrum sviðum lífsins
fylgjast ekki með framförum í véltækni. Það eru að vísu miklar
framfarir, en í samanburði mjög litlar. Til dæmis, hvers vegna
eru vesalings líkamir okkar svo sárþjáðir margsinnis? Hvers
vegna troðfylla sjúkdómar — í margs konar myndum — sjúkra-
hús vor og heilsuhæli? Hví er dauðinn enn svo önnum kafinn?
Annað er þó ennþá verra. Hvers vegna eru engar framfarir á
siðferðislegu og andlegu sviðunum? Hví eru menn eins þrætu-
gjarnir og þyrstir í hefnd eins og áður fyrr? Hví eru þjóðirnar
dauðhræddar hver við aðra? Menn geta spurt: „Hvað kemur
næst?“ með þægilegri eftirvæntingu, er þcir hugsa um furðu-
verk tækninnar. En þeir geta iíka spurt í hálfum hljóðum með
magnleysis ótta í hjörtum sínum, er þeir hugsa um ástríður
mannanna, og hvernig þeir geta notað tækni sína og uppfinning-
ar.
Auðvelt er að spyrja slíkra spurninga, og með biblíuna í hendi
sinni er auðvelt að svara þeim. Sorgir, stríð, sjúkdómar og dauði
eru hér, af því að syndin er hér. Þetta eru nokkrar af þeim
óttalegu afleiðingum, er hún hefir hér í veröld. En heimur
vor er ekki eini heimurinn. Annar heimur tekur við, og inn í
þann heim fer þú fyrr eða síðar. Hverjar verða afleiðingar synd-
arinnar þá? Þær verða alveg hræðilegar. Syndin hefir sett
þennan heim í skugga, skilið hann frá Guði. Syndir þínar, verði
þær ekki fyrirgefnar, munu skilja þig frá Guði í komandi lífi . . .
Hvað kemur næst á dagskránni, sem Guð hefir birt? Hið
næsta er það, að hann framkvæmir dóm yfir heimi hinna óguð-
legu. Þá opiberast Drottinn Jesús „með englum máttar síns, í
logandi eldi og lætur hegningu koma yfir þá, sem ekki þekkja
Guð og ekki hlýða fagnaðarerindinu um Drottin vorn Jesúm.“