Norðurljósið - 01.01.1976, Blaðsíða 122
122
NORÐURLJÓSIÐ
gjöf Guðs, veitt af náð án verka mannsins. Efes. 2. 8., 9. Frels-
uninni frá valdi, yfirráðum syndarinnar verður maðurinn sjálfur
að taka þátt í, 1 Þess. 5. 22., og vinna að hjálpræði sínu Fil. 2.
14., leggja niður vonda breytni. Kól. 3. 5.-8. Efes. 4. 22.-32.
Kraftinn til þessa fær kristinn maður fyrir heilagan Anda, lestur
og íhugun orðs Guðs og bæn.
Góða játningin. 1 Tím. 6. 12., 13. Drottinn Jesús játaði frammi
fyrir Pílatusi, að hann væri konungur. Sem hinn fyrirheitni
Messías Israels var hann „hinn máttugi Guð,“ Jes. 9. 6. Sbr.
Tít. 3. 13. Þeim, sem tóku við Jesú sem Kristi, konunginum guð-
dómlega, gaf hann rétt til að verða Guðs börn. Jóh. 1. 12. Sbr.
orð Péturs. Matt. 16. 16. Sem Jesús, frelsarinn, á hann skilið
elsku vora, sem Kristi, konungi, ber honum hollusta vor og
hlýðni af fúsu hjarta.
Guðsvarið Róm. 11. 4. Svar Guðs, orð Guðs. Sbr. 1 Kon. 19.
13.-18.
Guð þessarar aldar. (heimsins) 2 Kor. 4. 4. Satan. Sbr. Efes.
2. 1., 3.
Hataði... elskaði, Róm. 9. 13. sbr. Matt. 6. 24., Lúk. 14. 26.
Málvenja Gyðinga var sú, að nota þessi orð, í samanburði við
annað, í ekki eins strangri merkingu og hér á landi er gert.
Þau merkja að meta annað meir en hitt. Eiginmenn eiga að
elska konur sínar, Efes. 5. 25., 28., en mega ekki taka þær fram
yfir Drottin Jesúm og vilja hans. Sagan af Elí æðsta presti og
dómara ísraels, 1 Sam. 2., 3. og 4. kap., er sorgleg mynd þess,
hvernig fer, þegar Drottinn er metinn minna en börnin.
Heiðingjar. Þjóð eða menn, sem ekki voru af ísraels ætt,
hvort sem þeir voru kristnir eða ókristnir.
Heimsvættirnar. Gal. 4. 3., 9. Kól. 2. 8. frumstæðustu lög eða
reglur heimsins.
Helbruni: rotnandi sár á líkamanum, átusár.
Helgun. Hann (Kristur) er orðinn oss . . . helgun. 1 Kor. 1. 30.
Þegar Kristur tekur á móti syndugum manni, sem kemur til
hans (Jóh. 6. 37.), fyrirgefur hann manninum syndir hans og
helgar sér hann, greinir hann frá öðrum mönnum, sem ekki hafa
fengið fyrirgefningu. Þar með heyrir hann Kristi til, ekki synd-
inni, heiminum ófrelsaða, eða djöflinum. Upp frá því á maður-
inn að miða allt sitt líf við vilja Jesú og þjóna honum, vinna verlc
sín eins og þau væru unnin fyrir Jesúm Krist.
Hjálpræði Guðs. Frelsun frá hegningu fyrir syndirnar. Nýtt,
andlegt líf, sem Guð veitir fólki, sem vill fá fyrirgefningu og