Norðurljósið - 01.01.1976, Blaðsíða 40
40
NORÐURLJÓSIÐ
kemur inn í landið, sem Drottinn, Guð þinn, gefur þér, þá
skalt þú ekki taka upp svívirðingar þessara þjóða. Eigi skal
noklcur finnast hjá þér, er láti son sinn eða dóttur ganga gegnum
eldinn, eða sá, er fari með galdur, spár eða fjölkynngi, eða
töframaður, eða gjörningamaður, eða spásagnamaður, eða sá, er
leiti frétta af framliðnum. Því að hver sá, er slíkt gerir, er
Drottni andstyggilegur, og fyrir slíkar svívirðingar rekur Drott-
inn, Guð þinn, þá burt undan þér. Þú skalt vera grandvar gagn-
vart Drottni, Guði þínum. Því að þessar þjóðir, er þú rekur nú
burt, hlýða á spásagnamenn og galdramenn, en þér hefir Tahve,
Guð þinn, eigi leyft slíkt.“
Við tökum eftir, að „hver sá, „er leitar frétta af framliðnum,
er Drottni andstyggilegur.“ Andarnir, sem menn komast í sam-
band við, eru lygnir og óhreinir. Hvaða móðir mUndi vilja láta
barn sitt leika sér að moldugum höggormi, eiturnöðru? Vilji
einhver reyna að ónýta bann Guðs hér með því, að það standi
í 5. Mósebók, þá vil ég minna sá hinn sama á það, að í einmitt
þessa bók, 5. bók Móse, sótti Drottinn vor Jesús Kristur öll þau
ritningarorð, sem hann mætti Satan með, er hann kom og
freistaði hans svo sem frá er sagt í Matteusar og Lúkasar guð-
spjöllum. Satan er rógberi, svo að það er eðlilegt, að hann ó-
frægi þessa bók og vilji koma fólki til að óhlýðnast boðum
Guðs, sem standa í henni.
Mistókst Guði sköpunarverk sitt? Alls ekki. Það var full-
komið frá hendi hans. Maðurinn, sem frjáls vera, ber ábyrgð
á mistökum sínum, yfirsjónum og syndum. Guð er fús til að
endurskapa sérhvert mannlíf.
Hefir þér, áheyrandi minn, mistekist með líf þitt? Geymir
það vonbrigði, sorgir og synd? Naga þig hið innra glappaskot
genginnar ævi?
Ég hefi góðar fréttir handa þér, sem ég þegar hefi drepið á:
Guð er fús til að endurskapa þig, gefa þér nýtt andlegt líf, gefa
þér ný markmið og viðfangsefni á braut ævinnar.
Það, sem spillt hefir ævi þinni, er ekki vonska mannanna,
heldur ekki glappaskot sjálfs þín. Það er syndin, sem hefir gert
það. „Allir hafa syndgað og skortir Guðs dýrð,“ segir heilög
ritning. Ef þú hefðir elskað Guð af öllu hjarta þínu, allri sálu
þinni, öllum huga þínum og af öllum mætti þínum og náungann
eins og sjálfa eða sjálfan þig, þá hefði farið betur. „Allir hugsa
um sig. Það er aðeins ég, sem hugsa um mig,“ sagði stúlkan
í skáldsögunni. Er þetta ekki svo með okkur öll, þangað til