Norðurljósið - 01.01.1976, Blaðsíða 161
NORÐURLJÓSIÐ
161
bók lýsir því, hvernig venjulegum unglingum líður. Lífið er
svona í raun og veru. Þetta er raunsönn lýsing.“
Augu Carolar fylltust tárum. „Þá langar mig ekki til að lesa
raunsanna lýsingu. Fyrirgefið, get ég ekki fengið eitthvað annað
að lesa?“
„Nei,“ sagði ungfrú Sullivan festulega, „þú getur ekki rætt
um bókina ásamt bekknum, ef þú hefir ekki lesið hana.“
„En faðir minn sagði . . .“
„Ég er viss um, að faðir þinn mun skilja þetta, þegar þú skýrir
það fyrir honum.“
En faðir hennar skildi það alls ekki! „Nei, Carol, þú skalt
ekki lesa þessa bók. Fyrr tek ég þig úr skólanum en ég láti þá
koma þér til að lesa þetta sorp. En áður en það gerist, skulum
við sjá, hvort við finnum ekki einhverja leið til að gera rétt og
líka þóknast ungfrú Sullivan.“
„Kannski ég gæti boðist til að lesa tvær bækur í staðinn?“
„Góð hugmynd! Vertu ekki hrædd, Carol. „Drottinn mun
vera djörfung þín (ensk þýðing), segir í Orðskviðunum 3.26., og
í Orðskviðunum 28.1. stendur: „Hinir óguðlegu flýja, þótt
enginn elti þá, en hinir réttlátu eru öruggir eins og ungt ljón.“
Þegar þú gerir rétt, þarftu engan að hræðast. Vertu siðprúð og
hlýðin og reyndu að þóknast þeim án þess að gera rangt . . .
Viltu, að ég fari með þér í skólann á morgun?“
„Nei, herra, ég get fengist við þetta sjálf,“ sagði Carol djarf-
lega.
En morguninn eftir var ungfrú Sullivan eins hörð og steyptur
steinn. „Lestu þessa bók eða farðu og finndu skólastjórann.“
Carol titraði, þegar hún drap á dyr hjá herra Walker. En
hann svaraði með þægilegutn rómi. Sjáanlegt var, að ungfrú
Sullivan hafði þá þegar talað við hann, því að hann sagði:
„Carol, þú hefir alltaf verið samvinnulipur, lítil stúlka. Við
höfum aldrei átt í einum erfiðleikum með þig áður. Hvers vegna
lætur þú ekki undan og lest bókina, sem ungfrú Sullivan hefir
valið handa þér að lesa?“
Carol hrukkaði nefið. „Hafið þér lesið hana herra Walker?
Hún er hræðileg.“
„Segðu mér nú satt, Carol, ertu ekki að þessu, af því að pabbi
þinn segir þér það?“
Carol hristi höfuðið. „Nei, herra, það er ég, sem fór til hans
og bað hann að hjálpa mér. Sjáið, herra Walker, þér hafið heila
stofu fulla af bókum. Eru ekki einhverjar af þeim góðar? Mundu