Norðurljósið - 01.01.1976, Blaðsíða 148
148
NORÐURLJÓSIÐ
Ég þakka líka fyrir spurningu þína varðandi sköpunarsöguna.
Þetta er spurning, sem margir velta fyrir sér. En málið mundi
fá annan svip, ef menn vissu almennt, að sköpunarsagan í 1 Mós.
1. er að mestu endursköpunarsaga.
Árið 1950 gaf ég út bók, sem heitir: „Þróun eða sköpun?“
Þessa bók ætla ég að senda þér með „Daglegu ljósi“. Hún gerir
grein fyrir endursköpun lífsins á jörðinni, og að það fór fram
á 6 bókstaflegum dögum, en það vantar dálítið í þá bók, sem
mér varð ljósara síðan. Ég man ekki, hvort ég nefni í bókinni
það, sem Pétur postuli segir í síðara bréfi sínu 3. kap. 5. grein:
„Viljandi gleyma þeir því, að himnar voru til forðum og jörð
til orðin af vatni og upp úr vatni fyrir orð Guðs, og fyrir það
gekk vatnsflóðið yfir þann heim, sem þá var, svo að hann fórst.
En þeir himnar, sem nú eru, og jörðin geymast eldinum fyrir
hið sama orð.“
Þetta vatnsflóð, sem hér er talað um, getur ekki verið Nóaflóð,
því að „flóðgáttir himinsins lukust upp“ „og uppsprettur undir-
djúpsins luktust aftur og flóðgáttir himinsins.“ (1 Mós. 7.11. og
8.2.). Það er annað að opna þakglugga og hitt að taka þakið
alveg af. Hér er því eklci um annað að ræða en það, að þeir
himnar, sem nú eru, séu þeir himnar, sem sagt er frá í 1 Mós.
1.8., en himnarnir í 1. grein sama kafla séu þeir, sem fórust,
þegar jörðin varð — ekki var eins og stendur í biblíuþýðingu
okkar — auðn og tóm. Þú sérð, að ég breyti himinn í himna, en
það er svo á frummálinu, og skýri ég þetta allt nánar í bók minni,
nema þetta með 2 Pét. 3.5. — 7.
Það er talið nokkurn veginn öruggt, að það hafi ekki verið
uppi nema 10 ættliðir — Adam 1., Nói 10. — á undan flóðinu.
En eftir það getur verið, að vanti ættliði á sumum stöðum, sbr.
mismuninn á ættartölu Drottins Jesú í Matt. 1. og svo í Konunga-
bókunum. Eins er það, að í grísku þýðingu biblíunnar frá því
fyrir Krist er aldur hinna 10 ættliða á undan Nóa hærri en í
okkar biblíu. Munar þar fullum 1000 árum eða meir. Aldur
mannkynsins gæti því verið orðinn eftir endursköpunina 7000
ár eða meir. Fræðimenn Gyðinga hafa með vilja breytt ártali
sínu, því að þeir telja árin frá upphafi sköpunar, og hjá þeim
í ár er 5730.
Það er nokkurn veginn víst, að geysileg umbylting hefir átt
sér stað á jörðinni fyrir ekki meir en 10.000 árum, gæti verið
minni tími. Áður en byltingin varð, var íshafið heitt, en Kyrra-
hafið kalt. Þá var heitt á suðurskauti jarðar líka. En á einni