Norðurljósið - 01.01.1976, Blaðsíða 124
124
NORÐURLJÓSIÐ
Innblástur. Biblían, bækur hennar, ritningar hennar, er inn-
blásin, „Guðinnönduð“ bók, 2 Tím. 3. 16. Guð er ljós, 1 Jóh.
1. 5., þess vegna er hún ljós á vegi vorum. Sálm. 119. 105. Hún
er andleg, því að Guð er andi. Jóh. 5. 24. Hún flytur sannleika,
því að Guð lýgur ekki. Tít. 1. 2. Hún menntar menn í réttlæti,
því að Guð er réttlátur. 5 Mós. 32. 4. Hún gerir menn heilaga,
því að Guð er heilagur. 1 Pét. 1. 15., 16., 3 Mós. 19. 1., 2. Andi
Guðs notar orð hennar til að endurfæða menn. Jak. 1. 18.,
1 Pét. 1. 22., 23. Guðs er mátturinn, þess vegna er hún máttug
til að uppbyggja menn, styrkja trú þeirra og lífið í trú. Post. 20.
32., Jer. 32. 27.
Innsigli. Róm. 4. 11. Lærifeður Gyðinga kölluðu umskurnina
„innsigli Abrahams“, tákn þess, að hann tilheyrði Guði. Sbr.
Efes. 1. 13., 14. „Jakob elskaði ég.“ Róm. 9. 13. Jakob trúði orði
Drottins, að bróðir hans skyldi þjóna honum. 1 Mós. 25. 23.
Esaú trúði því ekki, og ísak ætlaði ekki að skipta sér neitt af því,
heldur fylgja fornum reglum.
Konungar. Menn krýndir sem sigurvegarar í kappleikjum. í
1 Kor. 4. 8. —13. 9. 24.-27. og á fleiri stöðum víkur Páll að
kappleikjum samtíðar sinnar, þegar frjálsir menn börðust fyrst,
en dauðadæmdir fangar voru geymdir villidýrunum síðast.
Lausnargjald. Matt. 20. 28. 1 Tím. 2. 6. Þegar tekið var mann-
tal meðal ísraelsmanna, átti hver sá, er talinn var, að greiða
Guði gjald. 2. Mós. 30. 12. Líf Krists, lagt í sölurnar fyrir synd-
uga menn, er lausnargjald þeirra, sem hann hefir greitt Guði,
svo að Guð getur á fullkomlega réttlátan hátt, fyrirgefið syndir
þeirra, sem tileinka sér friðþægingu, lausnargjald dauða Krists.
Leyndardómur. Róm. 16. 25. er boðskapurinn um hjálpræðið
í Kristi. Leyndardómur, orðið sjálft, merkir eitthvað, sem áður
var hulið mönnum, en er nú gert opinbert. Kaflarnir, þar sem
þetta orð er notað, eru verðir nánustu athugunar þeirra, sem
lesa þá.
Ljónið. 2 Tím. 4. 17. getur táknað bráða lífshættu eða verið
dulnefni á Neró keisara.
Lögmálið var gefið fyrir Móse, en náðin kom fyrir Jesúm
Krist. Jóh. 1. 18. Lögmálið var þríþætt: 1. Siðferðislögmál, boð-
orðin 10, gefin á Sínaí. 2. Fórnarlögmál, sem gaf fyrirmæli um
fórnir Israels. 3. Mós. 1. —7. kap. 3. Borgarleg lög, t. d. í 5 Mós.
19. —26. kap. og víðar. Þau voru siðferðis lögmálið, heimfært
til dagslegs lífs og guðsdýrkunar ísraels. Þetta þríþætta lögmál
tilheyrði Israel einum. 5 Mós. 4. 5.-8-, Róm. 2. 12. —14.