Norðurljósið - 01.01.1976, Blaðsíða 190
190
NORÐURLJÓSIÐ
Drengjaheimilið Asijörn 30 ára
Árið 1946 hófu þeir Arthur Gook og Sæmundur G. Jó-
hannesson þetta drengjastarf. Það var fyrst í bragga, sem var
reistur þar vegna þessa starfs. Fyrstu
árin dvöldu þar flokkar bæði drengja
og stúlkna. En starfið þróaðist þann-
ig, að drengir einir hafa verið þar nú
um margra ára skeið.
Fyrstu 10 árin báru þeir Arthur og
Sæmundur alla ábyrgð á þessu starfi.
En 1955 tók söfnuðurinn á Sjónarhæð
við starfinu, og gaf þá Arthur honum
allar eignir starfsins þar, sömuleiðis
leiguréttindin á lóðinni.
Söfnuðurinn hófst þegar handa um
að reisa nýtt hús, og er því lokið að
mestu. Dvelja þarna nú um 50 drengir í 8 vikur á sumri hverju.
Gamli bragginn hefir verið rifinn, svo að hans sér engar minjar.
Sæmundur rak heimilið fyrir safnaðarins hönd í 4 ár. En 1949
tók Bogi Pétursson við því starfi og hefir veitt heimilinu for-
stöðu síðan. Hann hefir staðið þar fyrir ýmsum nauðsynlegum
framkvæmdum, svo sem vatnsleiðslu heim í húsið, gerð Ieik-
vangs og knattspyrnuvallar ofl. á þessum 17 árum, sem hann
hefir verið forstöðumaður. Skal hér nú leiðrétt villa, er slæddist
inn í „Ferð til Ástjarnar" í Nlj. 1974, en þar var tími hans talinn
þá 16 ár í stað 15.
Margir eiga þakkir skilið fyrir stuðning við starfið, einstakl-
ingar, félög og Akureyrarbær. En mest þökkum við Guði góða
vernd og náð, sem hann hefir svo margvíslega sýnt okkur við
þetta starf.
Þannig mun það líka verða, á meðan bænir ykkar fylgja Ás-
tjörn, að blessun Guðs fylgi þessu starfi. Guð launi ykkur
öllum, sem liðsinni hafið veitt. — B. P.
öllum þessum gefendum, íslenskum og færeyskum, þakkar
ritstj. Nlj. innilega hjálpfýsi þeirra. Oft fylgja hlýleg bréf með
þökkum fyrir ritið og stundum vitnisburði um, að það hafi orðið
þeim til blessunar, sem bréfið ritar. Fyrir það og annað ber Guði
þakkirnar og dýrðin. — Ritstj.