Norðurljósið - 01.01.1976, Blaðsíða 91
NORÐURLJÓSIÐ
91
Manni, sem guðseðlið er ekki í, er ekki kleift að reyna kær-
leika slíkan sem þennan. En þegar hann snýr sér til Guðs í
sannri iðrun, játar syndir sínar fyrir honum, festir traust sitt á
Jesú Kristi, sem úthellti dýrmætu blóði sínu á krossinum, er
hreinsar hann af allri synd, þá gerist það, sem biblían segir
okkur: að „kærleika Guðs er úthellt í hjörtum vorum fyrir
heilagan Anda, sem oss er gefin.“ (tJr Emergency Post nr. 11,
1975).
Ríkið mun láta drenginn
yðar hlýða
EFTIR W. J. PHILIPS.
Móðir, sem meinti vel, sagði við mig hér um daginn: „Ekki
veit ég, hvað ég á að gera við þennan dreng. Hann gegnir ekki
nokkru, sem ég segi.“
„Hve gamall er hann?“ sagði ég.
„Hann er fjögurra ára, komin langt á fimmta ár.“
Þá sagði ég — og það var ekki ætlun mín að vera ókurteis
eða harður. „Ef þér getið haldið út með honum í þrjú eða fjögur
ár enn, þá mun ríkið taka hann úr höndum yðar, og ríkið getur
látið hann hlýða. Ríkið hefir gæsluvarðhalds-heimili, betrunar-
skóla fyrir afvegaleidda unglinga og betrunarhús í þeim tilgangi.
Og ríkið getur alltaf látið dreng gegna.“
Ekki var það skemmtilegt að segja þetta, og ekki var það
skemmtilegt fyrir þessa eigingjörnu og tilfinninganæmu konu
að heyra það. En ég segi talsvert margt, sem mér geðjast ekki að
segja. Það virðist, að einhver þurfi að segja það. Síðan hélt ég
áfram: „Drengur, sem er alinn upp við það að óhlýðnast valdi
móður sinnar, mun óhlýðnast yfirvöldum og lögum Guðs og
manna, er hann eldist. Vegna þessa höfum við æskulýðsdóm-
stóla, betrunarskóla og betrunarhús. Komi drengurinn yðar fram
gagnvart ríkinu eins og þér segið, að hann komi fram gagnvart
yður, þegar hann er fjögurra ára gamall, þá mun ríkið annað-
hvort skjóta hann sem þorpara eða hengja hann. Ríkið getur
bæði og vill látið drenginn hlýða.“
Tugir þúsunda eru nú í betrunarhúsum hér á landi. Ég heyrði
fyrrverandi dómara segja hér um daginn, að 98 af hverjum 100