Norðurljósið - 01.01.1976, Blaðsíða 89
NORÐURLJÓSIÐ
89
Hefnd kærleikans
Árið 1944 var ég tekinn höndum í Frakklandi. Gerði það
Gestapó lögreglan þýska. Ég var dæmdur til dauða. En ég átti
konu og fjögur lítil börn. Dóminum var því breytt í vist í fanga-
búðum.
Níu mánuðum síðar var þyngd mín orðin tæp 40 kg. Líkami
minn var þakin sárum, sem vessi rann úr. Handleggur minn
vinstri hafði brotnað og brotið látið gróa sem best það gat án
læknishjálpar.
Á aðfangadagskvöld var ég í fangakofa með öðrum föngum.
Yfirmaðurinn sendi eftir mér. Er ég kom í stofu hans, sat hann
þar með dásamlegan jólamat fyrir framan sig. Hann skipaði
mér að standa á hermannahátt allan tímann, sem hann neytti
matar, og það tók hann heila klukkustund. Á þennan hátt var
hann að kvelja mig, því að hann vissi mjög vel, að ég var sann-
kristinn maður, og að ég vitnaði fyrir þjáningar-félögum mínum.
Satan fór að freista mín hræðilega. Hann sagði við mig:
„Dabousu, ertu ennþá nógu heimskur til að trúa 23. Sálminum?
„Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta“.“ Á því andar-
taki hóf ég upp hjarta mitt í bæn og sagði við sjálfan mig með
algerri fullvissu: „Já, ég trúi honum algerlega."
Meðan þetta fór fram, kom þjónn inn með kaffikönnu og
fullan disk af lostætum, litlum kökum með sykurhúð ofan á.
Yfirmaðurinn fór að dreypa á kaffinu og eta kökurnar. Síðan
sneri hann sér að mér og sagði:
„Dabousu, konan þín er ágætis matreiðslukona! Hún er
hreinn snillingur.“
Þegar hann sá, að ég skildi ekki, hvað hann átti við, hélt hann
áfram:
„Síðastliðna sjö mánuði hefir konan þín mánaðarlega sent
þér böggul með góðgæti í, sem mér hefir þótt mjög gott.“
Ég vissi, að konan mín og fjögur litlu börnin okkar bjuggu
við sáralítinn skammt af mjöli og sykri. Hún hlaut því að hafa
minnkað þessa litlu skammta. Af þessu leiddi, að maður þessi
var að troða sig út á mat, sem börnunum mínum litlu hafði verið
neitað um.
Aftur mælti Satan í hjarta mínu: „Hafðu viðbjóð á honum,
Dabousu, hataðu hann, formæltu honum!“ Af einlægni bað ég
til Guðs. Með hjálp hans kenndi ég ekki minnsta haturs í hjarta