Norðurljósið - 01.01.1976, Blaðsíða 149
NORÐURLJÓSIÐ
149
stundu varð þessi feikna breyting, að helkuldi kom þar, sem hiti
var áður, svo að dýrin, sem drukknuðu í flóðöldu, sem gekk yfir
löndin, hraðfrusu og hafa legið í frosti síðan, þótt nokkuð hafi
þiðnað af þeim á síðustu áratugum.
Svar við fyrirspurn.
Fyrirspurninni um Talmúd má svara á þessa leið: Talmúd er
safn skýringa fræðimanna gyðinga á lögmáli Móse, eða svo segir
í fræðibók, sem ég fletti upp. Eru það því einkum 3. og 5. Móse-
bók, sem Talmúd inniheldur. Ég sá ekki, að minnst væri á sögu-
legu bækur Gtm eða spámannaritinu í því sambandi. En vafa-
laust mun Talmúd geyma einhverjar tilvitnanir í þær bækur. En
fræðimennskan er fólgin í því að þekkja og skýra lögmálið og
erfikenningar og skýringar feðranna, lærðra Gyðinga frá fyrri
tímum. Drottinn víkur að þessum skýringum þeirra í Matt. 23.,
í þrumuræðunni svonefndu. — Sæmundur G. Jóhannesson.
Hvað hlífði Jerúsalem?
„Dýrt barnagaman“, hét grein í „Vísi“, 7. maí sl. Ég var
beðinn að gera einhverja athugasemd við þann hluta hennar,
sem ræddi um frásögn biblíunnar, er 185 þúsund hermenn San-
heribs konungs dóu á einni nóttu.
Biblían er ekki fyrst og fremst saga af frumstæðum flökku-
þjóðum, þótt segi höf. svo í grein sinni, heldur þjóðum, sem áttu
fasta bústaði. ísrael hafði búið minnst 500 ár í landi sínu, en
líklega fremur 700 ár og átt þar fasta bústaði í borgum og þorp-
um, er frásagan gerðist.
Her Sanheribs sat ekki um „gyðingaþorp nokkurt", þegar um-
ræddur atburður átti sér stað. Sanherib hefir sjálfur skrifað frá-
sögn af herferð sinni. Segir hann þar, að hann hafi tekið 46 víg-
girtar borgir. Um Hiskía konung segir hann: „Sjálfan hann lok-
aði ég inni sem fugl í búri í borg hans Jerúsalem.“ En hann segir
ekkert frá því, að hann hafi tekið Jerúsalem. Hann segist hafa
flutt burt 200,000 hertekna menn og heldur svo frásögn sinni
áfram, að hann er kominn heim í land sitt aftur.
Hvað hlífði Jerúsalem og bjargaði henni? Þetta, sem biblían
segir frá. Engill Drottins deyddi þennan hluta af her Sanheribs,
er biblían segir frá. Samkvæmt öðrum heimildum var hann
kominn á leið til Egiftalands eða þangað, er dauða hermanna
hans bar að. Israelsmenn höfðu beðið Egifta um hjálp, og