Norðurljósið - 01.01.1976, Blaðsíða 166
166
NORÐURLJ ÖSIÐ
sem hann gat eftir aðalbrautinni. Kvikmyndin, sem hann fór að
sjá, hafði verið lengri en hann bjóst við. Það var nærri því orðið
aldimmt, og Tommi varð að flýta sér. Honum kom ekki í hug,
að fólk í bifreiðum gæti átt erfitt með að sjá hann. Bifreiðir
fylltu akveginn. Bílljósin björt gerðu ennþá erfiðar að sjá. Einn
vesalings ökumaður sá ekki Tomma fyrr en endurskinsglerið
aftan á hjólinu endurkastaði ljósglampa. Maðurinn hemlaði eins
snöggt og hann gat. En bifreiðin rann og rakst á Tomma, svo
að hann kastaðist til hliðar upp að vegarbrúninni. Reiðhjólið
molaðist undir framhjólum þessarar bifreiðar.
Læknirinn í sjúkrahúsinu skoðaði Tomma með röntgen-
geislum og hristi höfuðið. Mjaðmargrindin hafði brotnað og fót-
leggur og handleggur sömuleiðis. Hann var heppinn að vera
lifandi! Hann þurfti að vera minnst sex vikur í sjúkrahúsinu, og
vera með umbúðir í aðrar sex vikur. Síðan sagði læknirinn hljóð-
lega: „Ég er hræddur um, að Tommy verði haltur á meðan
hann lifir. Hann verður aldrei framar fær um að leika knatt-
spyrnuleik.“
Nú skulum við dæma um það, hvor sé hamingjusamari, Tumi
eða Tommi, sá sem hlýddi reglum eða hinn, sem braut þær.
Auðvitað er það Tumi. Þær varðveittu hann frá að meiða sig,
og þær munu varðveita hann í framtíðinni líka. Af því að hann
horfir ekki á kvikmyndir eða ljóta þætti í sjónvarpi, þarf hann
ekki að berjast við halda hugsunum sínum hreinum. Reglurnar
hjálp Tuma. Þær gera hann í raun og veru hamingjusaman.
Þetta á við um drengi og stúlkur, sem lifa vilja fyrir Drottin
Jesúm Krist .. .
Munið eftir því, að eina leiðin til að frelsast er sú, að þú
biður Drottin Jesúm að fyrirgefa allar syndir þínar. Eina leiðin
til að vita með vissu, að þið eruð frelsuð, er sú að trúa því, sem
orð Guðs segir. Eina leiðin til að varðveitast frelsaður er sú, að
biðja Guð að varðveita þig.
Enn er eitt eftir. Eina leiðin til þess að þú varðveitir gleði
þína í trúnni á Drottin, er sú, að þú gerir það, sem Guð segir
þér að gera.
Nú kemur enn ein ritningargrein: „Sæll er sá maður, sem
ávallt er var um sig; en sá, sem herðir hjarta sitt, fellur í ógæfu.“
Sá, sem er var um sig, kostar kapps um að þóknast Guði. Sá,
sem herðir hjarta sitt og hlýðir ekki boðum hans, sleppur ekki
við afleiðingarnar: (Sbr. Tomma, er skeytti ekki um varúð í um-