Norðurljósið - 01.01.1976, Blaðsíða 181
NORÐURLJÓSIÐ
181
Hreinsun
Eftir sannkristinn mann í Rússlandi.
„Þá sagði Jósúa við Akan: ,Gef þú Jahve, Israels Guði, dýrð-
ina og gjör játningu fyrir honum. Seg mér, hvað þú hefir gjört,
leyn mig engu.“ (Jós. 7. 19.).
Daginn áður hafði verið ákveðið, að ættkvíslir Israels allar
skyldu hreinsa sig. Akan þagði og leyndi synd sinni, þangað til
Drottinn sjálfur gjörði hana kunna.
Akan hefði átt að gjöra iðrun, þegar öllum var boðið að
hreinsa sig. Hann hefði átt að játa synd sína og bíða þess ekki,
að Drottinn gerði hana kunna. Þess vegna verður iðrun Akans
að kallast iðrun, sem kom of seint.
Þannig er þessu farið nú. Guð hefir boðið öllum mönnum, að
þeir skulu gjöra iðrun. (Post. 17.30). En margir leyna syndum
sínum þrátt fyrir það, að Guð hafi boðið öllum mönnum að gjöra
iðrun.
Er hinir dauðu hafa risið upp, munu allir standa frammi fyrir
Drottni. Hann mun birta og leiða í ljós allar leyndar syndir.
Þá munu menn iðrast, en iðrun þeirra verður sem Akans. Hún
kemur of seint, og Drottinn mun dæma þá.
Við verðum að muna, að syndin er eina verkfærið, sem
djöfullinn hefir í hendinni til að beita gegn fólki Drottins.
Drottinn hefir hertygjað okkur, svo að við höfum kraft til að
sigra syndina. Við sigrum djöfulinn fyrir blóð Krists, sigrum með
orði Guðs og heilögum Anda.
Júdas iðraðist og skilaði aftur silfrinu. Iðrun hans var gagns-
laus. Hann átti að iðrast og játa synd sína fyrir honum, sem
hann hafði syndgað á móti.
Bróðir særir systur eða systirin bróðurinn, eiginmaður konu
sína eða konan manninn. Þetta er svo játað fyrir Drottni, en
ekkert sagt við þá eða þann, sem fyrir sárinu varð. Þess konar
játning án sáttar við þann eða þá, sem þú særðir, gagnar þér
ekki neitt. Syndin heldur áfram að hvíla á þér. (Matt. 5. 23., 24.).
Líklega hefir þú engan drepið, en þú ert án kærleika í hjarta
þínu til bróður þíns eða systur. Þá ert þú manndrápari. (1. Jóh.
3. 10., 15.).
Þegar sh'kt ber við, er nauðsynlegt að iðrast. Sú iðrun kemur
í ljós á þann hátt, að þú trúir, að Drottinn dó líka vegna þessarar
syndar. Þú dæmir sjálfan þig frammi fyrir Drottni. Af því leiðir,