Norðurljósið - 01.01.1976, Blaðsíða 33
NORÐURLJÓSIÐ
33
Og auga hórkarlsins bíður eftir rökkrinu,
og hann segir: „Ekkert auga sér mig,“
og dregur skýlu fyrir andlitið.
í myrkrinu brjótast þeir inn í hús;
á daginn loka þeir sig inni,
þeir þekkja eklci ljósið.
Því að öllum er þeim niðamyrkrið morgunn,
því að þeir eru nákunnugir skelfingum niða-
myrkursins.“
Dökk er hún myndin, sem dregin er hér, af mannlegri eyrnd og
synd. Hvort sem það eru tvö þúsund og fimm hundruð eða
þrjú þúsund ár, síðan Jobsbók var rituð, hefir mannleg eymd
ekkert breytt sér. Satt er það. kristin trú hefir komið til sög-
unnar, síðan skráð var Jobsbók. Líknarandi Krists starfar enn
innan vébanda hennar. En þungskilin gáta þjáninganna kvelur
margan mannshugann enn. Mannsandinn spyr: „Hvers vegna
leyfir Guð alla þessa eymd, sé hann góður, gæskuríkur og al-
máttugur?“
í mánuðinum maí á þessu ári voru liðin 50 ár, síðan ég kom
til Akureyrar til þess að vinna hjá Arthur Gook. Það bar
þrisvar sinnum við á þeim árum, sem ég vann hjá honum, að
nemendur Menntaskólans á Akureyri skoruðu á mig að koma
til þeirra og taka þátt í umræðum viðvíkjandi kristinni trú.
Er einum þessara umræðufunda var lokið og aðrir nemendur
farnir, vék sér að mér smávaxinn niltur. sem engan þátt hafði
tekið í umræðunum. Honum lá bað á hiarta að segja mér. að
býskur heimspekineur hefði borið fram órækar röksemdir fyrir
því, að Guð gæti ekki verið til. Kvaðst hann að vísu ekki muna
þær vel, en þær væru þó á þessa leið: Ef Guð væri til. hlyti
hann að vera algóður. Við gætum ekki hugsað okkur Guð. sem
ekki væri góður. Ennfremur yrði hann að vera almáttugur, því
að ekki gætum við hugsað okkur hann á annan hátt en þann.
Nú. það væri staðreynd, að hið illa væri til í heiminum. Fyrst
Guð sem góður og almáttugur Guð hefði ekki útrvmt því, þá
gæti hann ekki verið til.
Ég leiði engum getum að því, hvernig mér hefði gengið að
svara þessu, ef Guð hefði ekki verið búinn að gera bað fvrh-
nærri brjátíu öldum. Ég SDurði unga manninn: ,.Hvor á að taka
málið í dóm, glæpamaðurinn eða dómarinn?“ „Dómarinn auð-
vitað,“ svaraði hann.
„Guð er búinn að svara þessu fyrir löngu,“ og ég Iét hann