Norðurljósið - 01.01.1976, Blaðsíða 185
NORÐURLJÓSIÐ
185
fáum ekki að halda þeirri öldulengd, sem stöðinni var upphaf-
lega veitt. Vér höfum orðið að sækja um nýtt leyfi í samræmi við
núgildandi ákvæði og reglur.
„Undir eins og það er fengið, og vér vitum, á hvaða öldu-
lengd vér megum útvarpa, getum vér lokið við stöðina, og verður
þá vonandi ekki mjög langt að bíða, þar til vér getum byrjað að
útvarpa."
Þetta var hið síðasta, sem Arthur Gook skrifaði í Norður-
ljósið um útvarpsstöðina á Akureyri, af því að útvarpið þaðan
sá aldrei dagsins ljós.
Hvernig stóð á því?
Útvarpsleyfið var endurkallað fyrirvaralaust.
Ekki var það af öldulengdarskorti. Skriflegar heimildir munu
sanna það.
Allar tilraunir í þá átt, að leyfið væri veitt að nýju, gerðu
alveg sama gagn og það, að berja höfðinu við steininn.
Stöðin var seinast rifin. Vinagjöf Breta til íslands var fleygt
á glæ.
Hverjum það var að kenna, að leyfið var endurkallað, er skráð
í bækur Guðs. Þeim verður síðar lokið upp. Þá mun einhver
óska þess, að breytt hefði verið öðru vísi við Arthur Gook en
gert var í þessu máli. En þá verður það um seinan. — S. G. J.
Sköptin, en ekki þróun
Sóley Jónsdóttir, Akureyri.
í Morgunblaðinu birtist í vetur grein, þar sem rætt var um
sköpunarsöguna. Höf. virtist trúa betur kenningunni um þróun
heldur en biblíunni. Þykir mér það mikill skaði.
Ég held það hljóti nú að fara úr tísku bráðum að trúa þróunar-
kenningunni. Hún er algerlega ósönnuð. En biblíunni getum
við treyst og öllu, sem þar stendur, líka sköpunarsögunni. Það
er ókristilegt að ætla, að menn séu apaættar. Hvernig er heldur
hægt að trúa einhverju í biblíunni en fordæma annað? Ef við
trúum ekki því, sem stendur á fyrstu síðum biblíunnar, er þá
nokkur ástæða til að trúa því, sem á eftir kemur? Efasemda- og
vantrúarmenn vita mæta vel, að ef þeim tekst að veikja trúna
á sköpunarsöguna, þá eru þeir raunverulega búnir að veikja
trúna á alla biblíuna. Ef við skiljum ekki eitthvað í biblíunni,