Norðurljósið - 01.01.1976, Blaðsíða 189
NORÐURLJÓSIÐ
189
um sinnum til þeirra hjóna, hans og Valýjar Ágústsdóttur. Var
mér þar ævinlega fagnað vel. Þau hjón eignuðust átta börn og
má óhætt segja, að þau höfðu barnalán sem kallað er. Færi ég
ekkju hins látna vinar og skólafélaga innilega samúðarkveðju
og öllum þeirra börnum.
Ásmundur Eiríksson, fyrrv. forstöðumaður Fíladelfíusafnað-
arins í Reykjavík, var ellefu dögum eldri en ég. Kynni okkar
hófust, að mig minnir, árið 1926. Það ár tók hann skírn trúaðra
og var tekinn í söfnuðinn á Sjónarhæð það ár, 4. desember.
Minnir mig, að það væri á því sumri, fremur en hinu næsta, að
hann sýndi mér eftirmæli, sem hann hafði orkt. Fann ég þá, að
þar kvað sá, er meira skáld var en ég. Varð ég þess brátt var,
að hann var mér í öllu fremri, meiri bænarmaður en ég, áhuga-
meiri að tala við fólk um hjálpræðið í Kristi og reyna að vinna
það fyrir Krist. Fannst mér seinna, að við Ásmundur ættum að
starfa saman. Hann að vinna sálirnar fyrir Krist, ég að kenna
þessum andlega nýfæddu börnum. Með öðrum orðum: Hann
hafði gáfu trúboðans, en ég kennarans. Með þessu er ekki sagt,
að Ásmundur hafi ekki getað kennt Guðs orð né ég unnið sálir,
en andlegar leiðir okkar skildu, er hann gerðist foringi Hvíta-
sunnumanna hér á landi. Kemst þar enginn samanburður að,
hve meira liggur eftir hann en mig.
Sendi ég eftirlifandi ekkju hans og söfnuði samúðarkveðjur.
Hann orkti og þýddi fjölda sálma, sem geymast munu fram á
ókomin ár.
Loks vil ég svo kveðja náfrænku mína Kristínu Sæmunds-
dóttur. Hún var starfskona fyrir sömu hreyfingu og Ásmundur.
Hún giftist aldrei, vann fyrir sér með saumum og vitnaði um
Krist bæði með einka-samtölum og ræðum á opinberum sam-
komum. Hún þýddi og orkti sálma, var Ijóðelsk og bókhneigð
eins og fleiri henni skyld'r. Hygg ég, að fátt af hennar fólki sjái
þessa stuttu minningargrein. En ég færi því, er hana kann að
sjá, samúðarkveðjur.
Ég þakka svo Guði fyrir þessa fjóra vini mína. Þeir hafa allir
miðlað mér einhverju, sem betra er að eiga í minninga sjóði en
ekki. — Sæmundur G. íóhannesson.
Verð ritsins, 192 bls., aðeins 500 kr.