Norðurljósið - 01.01.1976, Blaðsíða 170
170
NORÐURLJ ÓSIÐ
það frétti, að ofviðrið hefði rænt borgina listaverki því, sem var
hennar mesta prýði. Það safnaði brotunum saman, lét þau í kassa
og flutti niður í grafhvelfing kirkjunnar.
Dag einn bar svo til, að ókunnur maður kom í borgina. Hann
beiddist leyfis að mega sjá gluggann fagra. Honum voru tjáð
örlög hans. Hann spurði, hvað hefði verið gjört af brotunum.
Honum var fylgt í grafhvelfingu kirkjunnar og sýnd brotin.
„Væri ykkur sama, þótt þið gæfuð mér þau?“ spurði ókunni
maðurinn. „Takið þau, ef þér getið notað þau,“ var svarað, „þau
eru okkur gagnslaus héðan af.“
Maðurinn lyfti kassanum varlega upp og bar hann á brott í
fangi sér. Vikur liðu. Þá bárust boð til kirkjuvarðanna. Boðin
sendi listamaður, frægur fyrir snilldarverk, sem hann bjó til úr
mislitu gleri. Hann bauð þeim að koma heim til sín og líta þar
á glugga með lituðum glerrúðum. Hann fylgdi þeim til vinnu-
stofu sinnar. Þar lét hann þá standa fyrir framan tjald. Hann tók
í band, og tjaldið féll. Undrun slegnum augum þeirra mætti
gluggi úr lituðu gleri. Fegurð hans bar af öllu öðru, sem þeir
höfðu áður séð. Þeir störðu sem heillaðir á fjölbreytta litadýrð,
mikilfenglegar myndir og snilldar handbragð. Listamaðurinn
sneri sér þá að þeim og sagði: „Glugga þennan hefi ég gert úr
brotum brotna gluggans ykkar. Nú er hann tilbúinn, að hann
verði látinn aftur á sinn stað.“
Finnst okkur ekki stundum, að áform okkar hafi verið sundur-
moluð í stormum lífsins? Þakkaðu Guði fyrir það, og hleyptu
í þig nýjum kjarki. Hefir þú ekki numið það fyrir löngu, að
ruslahaugur er besti staður margra þinna áforma? Og hefir
þú ekki numið, að oftsinnis verður þú sjálfur eða sjálf að varpa
þeim á þann haug?
Hefir syndin orðið þér það, sem hélunóttin er blómi? Hafa
glappaskot unglingsára skaðað þig? Eru gleði og yndisleiki lífs-
ins horfin þér? Er ekkert framundan nema strit í fjötrum? Sé
það svo, þá skaltu vita þetta: Viðgerðarmaður er til, Jesús
ICristur, óviðjafnanlegur í lagfæringum lífs okkar manna, sem
erum í rústum. Reyndu hann! Hann mun talca að sér líf þitt, sem
virðist vera í rústum. Úr brotum þess getur hann gert annað líf,
annars konar ævi úr brotum hinnar, gert hana miklu fegurri
heldur en þú hefðir nokkru sinni getað gert úr henni óbrotinni.
Sú mynd, sem Guð býr til, mun verða þér miklu meira virði
heldur en árin öll, sem þú sér nú eftir og liggja á bak við þig.
(Þýtt úr Emergency Post, apríl 1974).