Norðurljósið - 01.01.1976, Blaðsíða 117
NORÐURLJÓSIÐ
117
Mun það líklegt, að þeir, sem heyra raust hans og fylgja honum,
slíti sig úr hendi hans?
En Drottinn sá þessa mótbáru fyrir. Þess vegna bætir hann
við, að Faðir hans sé öllum meiri. Guð er meiri en Satan, meiri
en illir englar og andar, meiri en nokkur sköpuð vera, hve
voldug sem hún er. Þess vegna sagði Drottinn: „Enginn getur
slitið úr hendi Föðurins.“ Orðinu „þá“ hafa þýðendur bætt við.
Ef nokkurt endurfætt barn Guðs gæti slitið sig úr hendi föður-
ins, þá væri hann ekki öllum meiri. En þau geta það ekki og þau
vilja ekki slíta sig þaðan.
Þeir, sem kenna, að Guðs endurfæddu börn, er heyra raust
Krists og fylgja honum, geti slitið sig úr hendi Guðs, kenna eitt-
hvað, sem Kristur Jesús kenndi ekki. Með hverju ætla þeir að
verja sig, er þeir standa frammi fyrir dómstóli hans? „Bæt engu
við orð hans, svo að hann ávíti þig eigi, og þú standir sem
lygari.“ (Orðskv. 30.6.).
„Jæja, fyrst þessu er svona varið, þá má ég fara og syndga
eins mikið og mér sýnist, fyrst ég á það ekki á hættu að glatast."
Ef þetta verður hugsun nokkurs þess, er lesið hefir undan
farnar greinir um það, hvað maðurinn öðlast, er hann endur-
fæðist, þá verð ég að segja í fyllsta kærleika og römmustu alvöru
við slíkan mann:
„Þú hefir aldrei þekkt náð Guðs. Hún hefir aldrei umbreytt
hjarta þínu, því að „náð Guðs . . . kennir oss að afneita óguðleik
og veraldlegum girndum og lifa hóglátlega, réttvíslega og guð-
rækilega í heimi þessum“ (Tít. 2. 11., 12.). Þá ert þú eins og
Símon töframaður, sem tekið hafði trú og látið skírast, „fastur
í beiskjugalli og ranglætis-fjötri.“ (Post. 8.23.). Þú átt þá „hvorki
hlut né arf í orði þessu,“ fremur en Símon.
10. Þegar maðurinn endurfæðist af orði Guðs og Anda, verður
hann Guðs barn, fær sonarréttinn hjá Guði. Upp frá því, agar
Guð hann, ef hann syndgar, eins og við lesum í bréfinu til
Hebrea 12. 5.-8. „Son minn, lítilsvirð ekki hirtingu Drottins,
og lát ekki heldur hugfallast, er hann tyftar þig. Því að Drottinn
agar þann, sem hann elskar, og hirtir harðlega hvern þann son,
er hann að sér tekur. Ef þér þolið (verðið fyrir) aga, þá fer
Guð með yður eins og syni; því að hver er sá sonur, sem faðirinn
ekki agar? En séuð þér án aga, sem allir hafa fyrir orðið, þá
eruð þér þrælbornir og eruð ekki synir.“ Án aga: þræll. Með aga:
sonur, barn Guðs.
Agi Guðs getur birst með mörgu móti: Hann getur komið