Norðurljósið - 01.01.1976, Blaðsíða 135
NORÐURLJÖSIÐ
135
valdið fjárhagslegum skaða, bætti ég tjónið. Blóð Jesú, sonar
Guðs, hreinsaði mig af allri synd fyrir Guði. En ég varð að
reyna að bæta öðrum það tjón, sem ég hafði gert. Þetta var í
samræmi við kenningar biblíunnar. — Vilt þú nú ekki verða
lítill drengur aftur, læra þetta hjá mér núna að ganga fram fyrir
Guð og gera upp reikninga lífs þíns? „Ef vér játum,“ fyrirgefur
hann.
Með innilegri fornvinarkveðju og ég bið líka að heilsa konu
þinni. Þinn gamli vinur,
ÞRJÚ BRÉF TIL EFANDI SÁLAR.
1.
Þú segir mér, að þú hafir verið veik. Þú snerir þér til Krists
vegna veikindanna. Þú lest daglega í biblíunni og biður mikið.
Og svo segir þú: „En ég er ekki orðin heilbrigð enn. Og enn
finnst mér eitthvað vanta á, að ég sé algjör frammi fyrir Guði.“
Síðan spyr þú: „Hvað heldur þú, að ég ætti að gjöra?“
Ég veiti því athygli, er ég les bréf þitt, að þú minnist ekki orði
á það, að þú hafir komið til Krists sem syndari til að fá fyrir-
gefningu synda þinna. Þú kemur til hans sem sjúklingur til að
fá lækningu á líkamlegum meinum þínum. Ég veit ekki, hvað
kann að vera kennt hér á landi í þessum greinum, en ég hefi
lesið um lækningaprédikara erlendis, sem hafa sagt fólki, að til
þess að það fái lækningu á líkamlegum meinum sínum, þurfi
það að koma til Krists og láta skíra sig. Fólk hefir komið, og
það hefir verið skírt, en það hefir ekki læknast heldur. Þú virðist
vera í svipuðum sporum. Hvað er að?
„Nú boðar Guð mönnunum, að þeir allir skuli alstaðar gera
iðrún.“ Post. 17. 20. Hefir þú gert iðrun? Hefir þú snúið þér
algerlega frá allri synd? Lestu greinina, sem byrjar á bls. 155
í Norðurlj. 1970. Lestu hana í einrúmi frammi fyrir Guði. Hvað
sem Andi Guðs kann að sýna þér hjá sjálfri þér, sem er rangt,
skaltu játa það samstundis með þeim ásetningi að gera það
aldrei aftur með Guðs hjálp.
Er rannsókninni lýkur, skaltu beina sjónum þínum að Kristi.
„Þetta er vilji föður míns, að hver, sem sér soninn og trúir á
hann, hafi eilíft líf.“ (Jóh. 6.40.). „Hann er orðinn oss vísdómur
frá Guði, og réttlæti og helgun og endurlausn.“ (1 Kor. 1.30.).
„Beinum sjónum vorum til Jesú, höfundar og fullkomnara trú-