Norðurljósið - 01.01.1976, Blaðsíða 139
NORÐURLJÓSIÐ
139
treysta sjálfum sér, heldur Guði. Hvers vegna treystir þú
betur svikulum og síbreytilegum tilfinningum hjartans en 5-
breytanlegu orði Guðs? En Guð er máttugur að gefa þér fullan
sigur. Treystu honum.
FYRIRSPURNARBRÉFI SVARAÐ.
Heiðraði herra.
Ég þakka heiðrað bréf yðar frá 18. þ. m. Ég hefi mjög lítinn
tíma sem stendur til að skrifa, en ég skal samt svara spurningum
yðar að nokkru leyti.
1. Hversu langt er síðan Guð skapaði Adam? Biblían segir
ekkert um það, af því að hún gefur ekki tímatal, sem miðað sé
við sköpun hans. Útreikningum fræðimanna ber ekki saman,
en margir giska á 7000 til 8000 ár. Um 6000 ár er líklega réttara.
2. Hvaða tækniþekkingu réðu menn yfir fyrr á tímum, sem
gerði þeim kleift að dreifast um allar jarðir heims? Sú tækni-
þekking, sem smíðað gat örkina hans Nóa, hlýtur að hafa gengið
í arf til eftirkomenda hans, svo að þeir hafa getað gert sér byttur
og fleka til að fleytast á um úthöfin. Sbr. bókina „Kontiki“ eftir
Thor Heyerdahl. Talið er, að forfeður Indíána hafi komið yfir
Beringssund. Eskimóar ferðast mest á ísum, sbr. bækur Vil-
hjálms Stefánssonar.
3. Hvaða tækni réðu forfeður vorir yfir, þegar þeir byggðu
píramýdana? Vinsamlegast náið í bókina „Fornar grafir og fræði-
menn“ og lesið blaðsíður 126 til 134. Þar er tækninni lýst, sem
fornleifafræðin hefir leitt í ljós.
4. Hver var tilgangurinn með þessum byggingum? Sömu blað-
síður, sem svara spurningu nr. 3, svara einnig þessari 4. spurn-
ingu.
5. Á að skilja jarðarsköpunina og sköpunarsöguna þannig, að
það hafi skeð á sex dögum, eða merkja þessir sex þættir aðeins
sköpunarstig, sem tekið hafa óralangan tíma? Hér leyfi ég mér
að vitna til bókar minnar, „Þróun eða sköpun?“, sem kom út
fyrir nokkrum árum. I Reykjavík getið þér fengið hana í Lands-
bókasafninu. (Viðbót: 6 venjulegir dagar. 2. Mós. 20. 9, —11).
6. Hvað merkja þessi orð: Fyrir þér er einn dagur sem þúsund
ár? Þau merkja, að Guð er óháður tímanum í þeirri merkingu,
sem vér skiljum orðið tími.
7. Hvað er Guð? Drottinn Jesús Kristur svarar þeirri spurn-