Norðurljósið - 01.01.1976, Blaðsíða 141
NORÐURLJÓSIÐ
141
— Guð getur þurft að aga börnin sín, getur þurft að kenna þeim
meiri samúð með öðrum, sem líða, með því að láta þau líða
sjálf. Þetta er reynsla mín.
BÆNÍR FYRIR VÍNSJÚKLINGUM.
Kæra frú
Ég þakka yður fyrir bréfið frá 23. 7., þótt ekki færði það
góðar fréttir.
Það er enginn leikur að biðja drykkjumenn lausa úr heljar-
klóm áfengis ofnautnar, ef vilji þeirra sjálfra er ekki fyrir hendi.
hvað þá séu þeir undir valdi illra anda þar að auki. Eigi að síður,
Guði er enginn hlutur ómögulegur. „En ögun afglapanna er
þeirra eigin flónska," segir ritningin. Sumir átta sig ekki fyrr
en þeir eru búnir að drekka frá sér heimili, konu og börn og
jafnvel æruna lílca og liggja í fangelsi. Kristur sagði við sjúkan
mann, sem hann miskunnaði sig yfir og læknaði: „Syndga þú
ekki framar, svo að þér vilji ekki annað verra til.“ Þetta skil
ég svo, að lækning mannsins yrði ekki varanleg, ef hann félli
aftur í þá synd, sem Drottinn hafði séð hjá honum. Ef fyrr-
verandi drykkjumenn fara að sækjast eftir félagsskap manna,
sem drekka, þá er þeim hætt við falli.
Ég verð að harma það, að þið fóruð ekki að ráðum mínum
að lesa saman ritninguna og biðja saman. Ráðlagði ég ykkur
ekki guðspjall Jóhannesar, að byrja með að lesa það? Það er
allt um Drottin Jesúm Krist og hvað hann vill vera okkur mönn-
unum. En fyrst þið eruð spíritistar og guðspekingar, þá er varla
von, að þið hefðuð mikla lyst á því. Svo er það líka, þegar búið
er að telja fólki trú um, að biblían, einkum gamlatestamentið,
sé ekki áreiðanleg bók, þá er ekki von, að það geri mikið með
þann hluta biblíunnar. En Drottinn vor Jesús Kristur þekkti
ekki óáreiðanlegar ritningar, þar sem gamla testamentið var.
Hann sagði um það: „Ritningin getur ekki raskast.“ Hann
vitnaði bæði til sköpunarsögunnar, Nóaflóðs, eyðingar Sódómu
og fleiri atburða, sem ofdirfskufullir menn neita nú, að sé
rétt. Ég fékk að kynnast þessu á skólaárum mínum. Þetta niður-
rif á trúnni á biblíuna gerir engum gagn nema djöflinum, sem
vill eymd og tortíming okkar mannanna. Vantrúin lyftir engum
upp. Það gerir aðeins trúin á Drottin Jesúm Krist, og þess vegna
leitið þér til mín á neyðarstund þessara vina yðar. En það er
um leið viðurkenning þess, að þarna geti hvorki spíritismi né