Jörð - 01.09.1947, Page 42
JÖRÐ
á líkamlega vísu, sópaði að henni, er hún kom inn í stofuna í
Þverárdal, elliprúð og fyrirmannleg, og kvaddi komumenn,
enda fannst mörgum gestum Brynjólfs bónda til um hina
göfuglátu móður hans. Dr. Gunnlaugur Claessen ritar þannig
í því bréfi, er eg vitnaði í: „Frú Hildur var með afbrigðum
höfðingleg kona í fasi og framgöngu." Hygg eg, að undir þessi
Þvcrárdalur.
Hann cr cnn að utan, cins og hann var á dögum Brynjólts Bjarnasonar þar.
Teiknað af Örlygi Sigurðssyni fyrir JÖRÐ.
orð taki allir, er skyn bera á kvenlega háttprýði og kvenlegan
þokka og sáu Iiana á efri árum hennar. Eg kynntist henni fyrst
þá, og er frásögn mín miðuð við það.
Frú Hildur var kona spurul, en án allrar lrnýsni og smá-
smuglegrar forvitni. Henni brást aldrei háttvísi né kurteisi.
Hún spurði einkum um kunningja, frændur og vini forna.
Slíkt var eina ráðið, sem hún átti völ á í einveru, samgönguleysi
og sambandsleysi við aðra landsfjórðunga, jafnvel við næstu
sveitir, til að hafa nokkrar spurnir af þeim, sem hún hafði
kynnzt eða lrenni voru skyldir eða venzlaðir. Eg gleymi aldrei,
hviílíkur fengur henni var í, er Þorvaldur Thoroddsen kom að