Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1930, Page 37

Eimreiðin - 01.10.1930, Page 37
eimreiðin SAGA ÚR SÍLDINNI 341 2aum til að skrifa þá upp. Öreigar verða þéttefnaðir á ekki lengri tíma en sem svarar einu miðlungsfylliríi, gjaldþrota menn eru flognir upp í loftið eins og tappi úr rófubyssu, áður en maður hefur tíma til að snússa sig. Stálhraustir vík- ingar ganga svo nærri kröftum sfnum, að þeir leggjast mátt- vana á planið, missa mælið og andast fyrirvaralaust. Sóma- og hæglætismenn verða brjálaðir af næturvökum og ofreynslu, fara öskrandi um göturnar með eldrauðar glirnur, brjóta rúður, guðlasta og leggjast á fólk. Dauðvona menn skvera sér fram úr kojunni, henda öllu meðalaskítbrasinu framan í lækninn og ráða sig í nótabrúk. Það eru jafnvel dæmi til, að konur taki léttasóttina yfir síldarkössunum, og verður að beita þær ofríki til að sannfæra þær um, að þeim sé betra að skreppa af glámbekknum rétt á meðan. Eftir dálitla stund koma þær aftur og halda áfram að kverka eins og ekkert hafi í skorist, en kýrnar vaða öskrandi inn í kálgarðana til að leita að mjaltakonunum og troða niður alt kartöflugrasið af ein- fómri mannvonzku, unz einhver strákur er sendur neðan af bryggjunni með stóra síld í hendinni til að reka þær. Og hann danglar í þær með síldinni. 3. En af öllum þeim bökum, sem bogra meðfram kössunum, beygja sig og rétta í stöðugri óreglu, þá er eitt bak bognara en öll hin; það er svo bogið og stirt, að manni finst í raun- inni, að það sé hreinasta guðs mildi, að það skuli ekki vera brotnað fyrir lifandi löngu. Þetta er bakið á æfagamalli konu, sem heitir Kata gamla í Vörinni. Hún er klædd í karlmanns- jakka, gauðrifinn og úislitinn, og í strigapils, sem líklega hefur verið á litinn eins og hver annar poki, þegar það var ungt, en nú er það eins og gamall poki, sem lengi hefur legið fullur af trosi niðri í fjöru. Um hálsinn hefur hún mórauða dulu og suðvestisrægsni á höfðinu, á hnýttum fótunum ein- hverjar blöðrur, sem enginn mundi trúa, að væru skór, ef það lægi ekki næst að ímynda sér, að það, sem fólk yfirleitt hafi á fótunum, muni vera þeirrar tegundar. Vilji einhver sjá framan í hana, þá gefur á að líta hrukkótt gamalmennisandlit með einni stórri tönn, eldrauðum augum og illa sprottnu
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.