Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1930, Page 44

Eimreiðin - 01.10.1930, Page 44
348 ISLENZKAR SÆRINQAR ElMREIÐiri Það er ekkert vafamál, að galdratrú á íslandi er jafngömul byggingu landsins. Nýjustu rannsóknir á norskum rúnaristum hafa meðal annars leitt það í ljós, að fengist hefur verið við galdrastarfsemi í Noregi áður en Island bygðist þaðan, og hafa landnámsmenn vorir haft galdratrú Norðmanna út hingað. Þó að galdra og galdrafólks sé minst á víð og dreif í fornum íslenzkum heimildum, bæði kvæðum og sögum, er sú vitneskja, sem þær veita um þá hluti bæði fátækleg og lítt ábyggileg. Hún sýnir að vísu, að Islendingar hafa snemma trúað á galdur og fengist eitthvað við fjölkyngi og kukl. En um þess háttar heimildir er í slíkum efnum jafnan vafasamt, hvort þær lýsa fremur því ástandi, sem þær virðast skýra frá, eða per- sónulegu viðhorfi höfunda sinna. Oss skortir tilfinnanlega samtimafrásagnir og skjalleg gögn um galdrastarfsemi Is- lendinga fyrir siðaskifti, þ. e. frá upphafi Islandsbygðar til nál. 1550, ef hún hefur annars verið nokkur að ráði. Ef til vill hefur þjóð vor eftir kristnitöku að mestu látið sér nægja bænir og alls konar hjálpráð, sem kaþólsk kirkja lét mönn- um í té. Kaþólsk kirkja stóð vel að vígi til að útrýma þeirri galdra- og gerningatrú, sem menn hér á landi munu hafa verið haldnir af í heiðnum sið. Heiðin goð og sú forneskja, sem var tengd við þau, máðist brátt út í ljóma þeirn.. er stafaði af >Hvítakristi* og dýrlingum kristins siðar. Ef í nauðir rak, réð kirkjan yfir nægum hjálpráðum, sem hún heimilaði mönn- um og sjálfgert var að leita til. Menn þurftu einatt ekki annað en heita á heilaga menn, snerta á helgum dómum o. s. frv. til þess að fá bætur allra meina sinna. Því má svo að orði kveða, að kaþólsk kirkja veitti íslenzkri alþýðu upp- bót fyrir þann undramátt, sem menn töldu fólginn í göldrum og gerningum. Af þessu leiðir það, samhliða erlendum áhrif- um, að fyrst eftir siðaskiftin á 16. öld fer að brydda á galdra- trú og galdrastarfsemi hér á landi. Þegar dýrlingar kaþólsks siðar hverfa, kemur djöfullinn, sem í kristnum sið var talinn höfundur galdra og gerninga, á kreik, og á 17. öld nær ís- lenzk galdratrú hámarki sínu. Þá hefjast galdramál hér á landi, og í dómasyrpum frá þeim tímum er varðveitt þó nokkur ábyggileg vitneskja um galdratrú og galdrastarfsemi Islendinga.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.