Eimreiðin - 01.10.1930, Síða 120
424
RAUÐA DANZMÆRIN
EIMREIÐIN
af vígvellinum launaði Mata Hari þeim með blíðuatlotum og
algleymi ölvunar.
Ekkert af þessu fór fram hjá hinum árvökru njósnurum
Bandamanna, sem sífelt höfðu gætur á Mötu Hari. Þeir rann-
sökuðu vandlega allan þann mikla bréfafjölda, sem henni barst,
en fundu ekkert grunsamlegt.
Það er hvergi nærri eins mikill vandi fyrir njósnara að ná
í upplýsingar eins og að koma þeim til hins rétta viðtakanda.
Þá fyrst reynir á snilli njósnarans, er að því kemur, að hann
þarf að velja leið til að koma fengnum upplýsingum til yfir-
boðara sinna. Venjulegar njósnaraaðferðir voru of áhættu-
miklar fyrir Mötu Hari, þar sem hún lá undir grun. Þýzku
yfirvöldin vissu af eigin reynd, að sérfræðingar geta leyst
upp flóknustu dulskeytakerfi, og að það getur verið afar-
hættuleg aðferð að hafa marga samstarfandi njósnara til að
koma upplýsingum áleiðis. Þess vegna varð að finna upp ör-
uggari aðferð til þess að veita fregnum til Amsterdam og
Antwerpen. Vfirleitt var ekki treystandi á viðurkendar og
þektar njósnara-aðferðir samtímans. Osýnilegt blek, búið til
úr lauk eða sítrónu-safa, var oft notað til þess að koma
leyniboðum með í venjulegu bréfi. Þurfti ekki annað en hita
pappírinn til þess að skriftin yrði læsileg. Þessi gamla aðferð
var fljótt lögð niður og aðrar flóknari og vísindalegri upp
teknar. Sápur og ilmvötn með kalí- og blýsamböndum, til þess
að búa til ósýnilegt blek, varð hvorttveggja nauðsynlegur liður í
útbúnaði njósnarans. Þurfti hann ekki annað en dýfa vasaklút
í vatnsglas með þessum efnum í, til þess að fá þetta blek eftir
vild. Eitt sinn kom það fyrir í Amsterdam, að leynilögreglan
fann miklar byrgðir af þessu bleki í ferðakistu einni, sem var
full af óhreinum nærfötum. Ferðakistan hafði verið send frá
Amsterdam af manni, sem ekki hafði dvalið í þeirri borg svo
mánuðum skifti. Það var ekki fyr en eftir að hver spjör hafði
verið rannsökuð efnafræðilega, að Ioks fanst sokkapar vætt í
efni, sem hefði nægt til að framleiða ósýnilegt blek handa
heilli hersveit njósnara. Ekkert fanst af þessu efni í kistunni
nema í þessum einu sokkum.
Önnur aðferð, sem mikið var notuð til þess að koma upp-
lýsingum áleiðis, var sú, að setja smáauglýsingar í blöðin. En