Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1942, Blaðsíða 51
49
Ólafsvíkur. Nokkur tilfelli (ekkert skráð).
ísajj. Nokkur dreifð tilfelli.
Hólmavikur. Oft einhver slæðingur.
Akureijrar. Alltaf einhver tilfelli, og á þessu ári kom fyrir 1 mjög
slæmt tilfelli þessa sjúkdóms (ekki skráð). 45 ára bóndi frammi í
Eyjafirði fékk svo hatramlegt munnangur, að flytja varð hann á
sjúkrahús Akureyrar. Þar lá hann marga daga milli heims og heljar,
og var tvísýnt um, hvort hann mundi Hfa, en þó batnaði honura alveg
að lokum.
Berufj. Fáein tilfelli væg (ekkert skráð).
Vestmannaeyja. Gerir vart við sig öðru hverju (ekki skráð).
Keflavíkur. Talsvert tíður kvilli á börnum, en fæst af því skráð.
27. Hlaupabóla (varicellae).
Töflur II, III og IV, 27.
■S júklingafjöldi 1933—1942:
1933 1934 1935 1930 1937 1938 1939 1940 1941 1942
Sjúkl........ 351 315 178 256 292 385 292 245 133 337
G(ekk með meira móti. Einkum mikill faraldur á ísafirði.
Læknar láta þessa getið:
Rvik. Allmikið bar á hlaupabólu, einkum að vorinu í marz—maí.
Skipaskaga. Gerði aðeins vart við sig.
Borgarfj. Nokkur tilfelli, væg, á barnaheimilum Rauðakrossins.
Stykkishólms. Hefur verið að stinga sér niður allt árið (enginn
sjúklingur skráður). Leiður kvilli og stundum þrálátur.
Isafj. Aðalfaraldurinn byrjaði í febrúar og stóð til aprílloka, síðan
dreifð tilfelli. Veikin varð allþung á mörgum, sérstaklega eldri
unglingum og fullorðnum, sem fengu hana.
Ögur. Hlaupabóla og ristill gengu á 2 heimilum mjög afskekktum i
ísafirði. Fyrst fær gömul kona herpes, 14 dögum seinna fá 2 börn á
sama bæ varicellae. A tímahilinu voru engar samgöngur við aðra
bæi. 3 mánuðum seinna herpes á bæ hinum megin við fjörðinn, en á
inilli bæjanna voru einhverjar samgöngur á tímabilinu.
Svarfdæla. Fáern tilfelli.
Akureyrar. Gerði lítillega vart við sig á árinu. Var algerlega mein-
laus.
Seyðisfj. Hlaupabóla virðist oft gera vart við sig um áramót, hvað
■sem til kemur.
Siðu. Einn sjúklinganna, bóndi hátt á þrítugsaldri, var hann út-
steyptur í bólum. Hér í sveitinni eru vafalaust fullorðnir, sem ekki
bafa fengið hlaupabólu.
Vestmannaeyja. Hefur stungið sér niður lílct og undanfarin ár.
Rangár. Sennilega fleiri veikzt en skráðir eru.
Auk framangreindra farsótta geta læknar um þessar bráðar sóttir:
Angina Plaut-Vincent: í Rvík er að vanda getið á mánaðarskrám
nokkurra tilfella, 8 alls. Þau skiptast i flokka eftir aldri og kynferði,
7