Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1942, Blaðsíða 198
196
9. 3. júní. G. H-dóttir, 31 árs. I'ólkið í ibúðinni, sem vissi, að konan var vanfær,
heyrði um miðjan dag barnsj'rát inni á salerninu, sem var lokað. Einhverjum
tókst að skríða inn um glugf;a ])ar og fann [)á konuna látna á gólfinu, en lif-
andi barn lá við hlið hennar, og var naflastrengurinn heill. Barnið lifði.
Alýktun: Við líkskoðun og krufningu fundust greinileg einkenni nýafstaðinnar
fæðingar, og var fylgjan einnig farin. Ekki fannst ncin æðastifla, ekki heldur
loftsífla, sem var sérstaklega atliugað. Blóðleysi var ekki mjög mikið, svo að
ekki er líklgt, að blóðlát hali orðið að bana. bað, sem sérstaklega var áber-
andi, var hið óvenjulega blóðleysi í heilanum, sem var langt fram vfir það,
sem algengt er. Sennilegast þykir, að fæðing hafi verið hyrjuð hjá konunni,
er hún fór á salernið, cn þar hafi fæðingin gengið mjög skyndilega. Vegna
hinnar skyndilegu tæmingar á leginu, þar sem konan situr sennilega, meðan
barnið fæðist, og e. t. v. vegna skyndilegrar hræðslu um leið eða um svipað
leyti, hefur heilinn orðið óvenjulega hlóðlaus, svo að af því hcfur hlotizt
yfirlið og dauði.
10. 0. ágúst. E. K-son, 33 ára. Fannst andaður heima hjá sér með skotsár í enni.
Riffill lá við hlið hans. Blóðpollur á gólfinu undir höfði líksins. Ályktun:
Banameinið hefur verið riffilskot, og hefur skotið gengið í gegnun) heilann
endilangan, en stöðvazt á hnakkabeininu án þess að komast i gegn. Innskots-
opið bendir til, að skotið hafi riðið af mjög nálægt, scnnilega ekki nema ca.
10 sm frá hörundinu. Sennilegt, að maðurinn hafi dáið svo að segja sam-
stundis af skotinu. Ekki fundust einkenni þess, að hinn látni hefði þjáðst af
neinurn líkamlegum sjúkleika.
11. ti. ágúst. A. J-son, 85 ára. Var á gangi á götu, er bíll ók á hann. Maðurinn var
dáinn, er komið var með hann á Landsspítalann skömmu seinna. Við líkskoðun
og krufningu fundust mikil, gapandi sár á höfði og liálsi, enn fremur gapandí
sár á h. úlnlið og fótleggjum. Mörg bein brotin: V. upphandleggur í miðju, v.
fótleggur þverbrotinn ofan til og mörg rif báðum megin. H. viðbein gengið úr
liði við brjóstbeinið. Ályktun: Við líkskoðun og krufningu kom í Ijós, að hinn
látni hafði hlotið mjög mikil meiðsli: Svöðusár á hálsinn h. megin, mjög
mikið brot á hauskúpunni, brot á v. upphandlegg og v. fótlegg, enn fremur
mörg rifjabrot og mikil blæðing inn i v. brjósthol. I'essi meiðsli voru svo mikil
og alvarleg, að sennilegt er, að maðurinn hafi aðeins getað lifað stutta stund
með þau.
12. 18. ágúst. F. O-son, 88 ára. Iíom daginn fyrir (sic) andlátið ásamt manni upp
á Landsspítala, og höfðu þeir báðir beðið um, að dælt væri upp úr maga á
þeim, þvi að þeir hefðu drukkið einhverja ólyfjan. Var byrjað á að pumpa
upp úr F. Ó„ en meðan verið var að þvi, lézt hann skyndilega. Hinn maður
inn hljóp þá út og sást ekki síðan, en fréttist, að hann væri heill heilsu
morguninn eftir. Við krufninguna fannst stórl kjötstykki í kokinu, sem þrýsti
að barkalokinu yfir barkakýlinu og Iokaði því. Þetta kjötstykki var 6X4X3
sm og fyllti alveg út í kokið. Ályktun: Krufningin hefur leitt í l.jós, að mað-
urinn hefur dáið af því, að stór kjötbiti hefur setið fastur i koki hans. Þegar
slangan hefur verið rekin ofan i vélinda, hefur alveg lokazt f.vrir barkakýlið
og maðurinn kafnað.
13. 31. ágúst. J. E. J-son, 30 ára. Varð fyrir árekstri herbifreiðar, meðan hann ók
i bíl sínum utan við bæinn, og fannst liggjandi meðvitundarlaus utan við
veginn. Ályktun: Við likskoðun og krufningu kom í ljós mikill áverki á höfði,
og var hauskúpan brotin á mörgum stöðum, bæði hvelfing og botn bennar.
Blætt hafði inn á lieilann og heilavefurinn skaddazt. Blæðingar jæssar og
skemmdir á heilanum hafa orðið manninum að bana. Eftir áverkanum að
dæma, hefur maðurinn fengið gríðarmikið högg á höfuðið framanvert.
14. 4. september. M. Á. E-son, 48 ára. Datt niður kjallarastiga, lá mcðvitundarlaus,
er að var komið, og andaðist litlu síðar. Ályktun: Við likskoðun og krufningu
kom í ljós, að höfuðkúpan var mikið brotin, en blæðingar í lieilabúinu, sem
af brotinu hafa hlotizt, og enn fremur í heilanum sjálfum liafa leitt til
bana. Við innri rannsókn fundust engar sjúklegar brej'tingar, nema gamlar
berklabreytingar í lungum og blöðrunýra v. megin, sem sennilega hefur verið
meðfætt.
15. 9. október. Þ. J-son, 77 ára. Herbifreið ólc á manninn, sem andaðist sama dag.
Ályktun: Við krufningu hafa fundizt mikil brot á grindarbeinum og miklar