Úrval - 01.01.1964, Blaðsíða 42
48
ÚR VAL
lega um, að sá, sem þeir fóru
til síðast, sé vita gagnslaus og
hlaupa til næsta læknis. Af
reikningi konu nokkurrar kom
í ljós, að hún hafði vitjað tólf
lækna á fjórtán dögum!
í fjórða flokknum er gamalt
fólk, sern ekkert hefur að dunda
við sér til dægrastyttingar, og
finnur, að það getur ekki leng-
ur vakið atliygli yngra fólks-
ins, og tekur þá að beina at-
hygli sinni ,að eigin líkama.
„Það er alltaf erfitt að umgang-
ast móðursjúkt fólk, en þegar
ellin bætist við, verður það enn
erfiðara,“ segja læknarnir Ew-
ald Busse og John Reckless i
blaði Ameriska Læknafélagsins.
Allir kannast af dapurri reynslu
við sjúkdómalýsingarnar, sem
svo oft einkenna samkomur eldra
fólks.
En hvaða flokki sem það til-
heyrir, er þetta fólk sjálfum sér
og öðrum til ama. Hugmynda-
auðgi þess sér yfirvofandi hættu
i hverjum viðkvæmum bletti
eða lítilfjörlegum; sting i líkam-
anum. Hinn gamansami (og að
egin sögn móðursjúki) skop-
teiknari, Don Herold, segir frá
þessu dæmi um það, hve í-
myndunin geti leitt menn langt:
Nokkrar nætur í röð gat hann
ekki sofnað fyrir undarlegu
tif-hljóði, og leitaði loks læknis-
Jijálpar. í tvær vikur samfleytt
var hann rannsakaður með
röntgen myndatökum, hjarta- og
heilariti o. s. frv. Að lokum
fannst, hvaðan liljóðið stafaði.
Það kom frá hitastillinum i raf-
magnshitapúða hans.
En hvað um orsök móður-
sýkinnar? Þeir, sem hafa rann-
sakað kvillann, benda á sálræn-
ar rætur hans. Eins konar flótta-
tilraun, með hjálp ímyndaðs
sjúkleika, er ein orsökin. Mað-
ur óttast t. d. harðan pg eftir-
gangsaman húsbónda og leitar
sér hlifðar i lasleika. Óafvit-
andi vonar hann, að það dragi
úr hörkunni, og skapi samúð.
Frægasta dæmi af þessu tagi
í sögunni var Elísabet Barret
Browning. Faðir hennar var
harðstjóri, sem gerði henni líf-
ið að kvalræði. Það varð Elisa-
betu til bjargar, að i æsku varð
hún fyrir slysi, sem snerti mæn-
una lítils háttar. Hún gerði
margfalt meira úr þessu en á-
stæða var til, og lá að mestu
leyti á legubekk til fertugsald-
urs. Þá kom Robert Browning
og hreif hana á skömmum tíma
úr þessum álögum. í stað þess
að kippa undan henni fótunum,
kippti hann henni á fæturna.
Og eftir að þau giftust, gerðist
hin fatlaða Elísabet fjallgöngu-
maður, eignaðist barn og tók
mikinn þátt í stjórnmálum.
Dr. Walter C. Alvarez, fyrrum