Úrval - 01.01.1964, Blaðsíða 166
172
URVAL
þess að vita, að hann gat verið
jafn ósveigjanlegur þegar hann
hafði á röngu að standa og þeg-
ar hann hafði rétt fyrir sér.
Hann vissi, að Alec myndi held-
ur afsala sér öllum rétti og
tækifærum en að svíkja loforð
sitt.
Alec, Herra Hubbard og einka-
leyl'alögfræðingur fóru til móts
við hr. George Brown, þegar
hann lagði af stað frá New York
þ. 25. janúar. Þeir töluðu um
Brown-Beil samninginn við
hann, og herra Brown lofaði
því hátíðlega að senda strax
skeyti, er búið væri að sækja
formlega um einkaleyfið í Lon-
don.
Herra Hubbard taldi Alec á
að útbúa aðra umsókn með fullri
iýsingu á uppfinningunni, og
skyldi leggja hana fram í Wash-
ington, samstundis og fréttirbær-
ust frá London þess efnis, að
ailt væri í lagi. En þaðan barst
ekkert skeyti, því að George
Brown fór að efast um, að nokk-
uð væri varið i þetta tæki Al-
ecs. Hann hélt, að hugmyndin
væri fjarstæða ein og væri ekki
þess virði, að 300 dollurum
væri hætt hennar vegna. Hann
ákvað því að setja lýsingu tæk-
isins og drögin að einkaleyfis-
umsókninni neðst ofan í ferða-
kistu sína og reyna að gleyma
þeim.
Og tíminn leið, en Alec Bell
neitaði enn að sækja formlega
um einkaleyfið i Washington.
Að lokum missti herra Hubbard
alla þolinmæði og skipaði lög-
fræðingi þeirra i Washington að
senda umsóknina. Og þvi var
sótt formlega um einkaleyfið
að morgni þ. 14. febrúar árið
1870. Beiddist Alec þvi mjög.
Síðari liluta sama dags sótti
Elisha Gray, rafvirki frá Chica-
go, um einkaleyfi á tæki, sem
hann kallaði „rafmagns-talsima-
tæki“. Umsókninni fylgdi aðeins
lýsing á þeirri liugmynd hans,
en umsókn Alecs höfðu fylgt
fullkomnir uppdrættir að full-
gerðum tækjum. En samt varð
sú tilviljun, að umsóknirnar
bárust báðar einkaleyfaskrif-
stofunni sama daginn, síðar
tilefni til harðvitugra deilna.
Það var mjög heppilegt, að það
lék enginn vafi á því, að lög-
fræðingur Alecs hafði orðið að-
eins á undan að senda umsókn
sína.
Hingað til hafði tækið sjálft
ekki verið fullgert, heldur var
uppfinningin í raun og veru
fremur á hugmyndastiginu enn
þá. Tækið var ekki nothæft
enn. En viku eftir að Alec var
veitt leyfið, tókst honum að full-
gera fyrsta tækið, þannig að það
varð nothæft. Þeir Tom Watson
voru að prófa senditæki eina