Úrval - 01.01.1964, Blaðsíða 54
60
ÚR VAL
Pýramidinn frægi.
ast. Ég cr logandi hræddur,
í hvert sinn sem ég legg út á
línuna, þótt ég telji sjálfum
mér ávallt trú um, að ég sé
í engri liættu.“
„An jafnvægis'stangarinnar,“
sagði hann við nýliðann, ,,gct-
urðu ekki náð jafnvægi á lín-
unni, en ef þú ert með stöngina,
nærðu alltaf jafnvægi, þótt illa
horfi. Haltu ’fast í stöngina,
og slepptu lienni aldrei, hvað
sem á dynur.“
Þetta kvöld í Detroií átti
Dieter að koma fram opinber-
lega aðeins í þriðja sinn. Áð-
ur en sýningin hófst, sagði
hann við Dick Faughnan,
tengdason Karls, að honum liði
ekki beint vel.
„Ef þú heldur að þú sért
að fá flensu, skaltu segja Karli
það,“ sagði Dick honum til
viðvörunar. „Þú þarft ekki að
vinna, þegar þú ert veikur.“
,,Nicht flensa,“ sagði Dieter.
,,Nur eine kleine magapína."
Svning Wallenda-flokksins
var sú næst síðasta á fyrri helm-
ingi sýningarinnar. Þegar flokk-
urinn var saman kominn við
innganginn að miðhringnum,
lcit Karl áhyggjufullur á Dieter.
„Bist du all ric/ht?“
,,Ja, auðvitað,“ svaraði Diet-
er fýldur.
Þegar lúðrarnir höfðu verið
þeyttir og' fólkið var komið
upp að línunni, hófust aliir
handa. Gunther fór yfir línuna
á reiðhjóli. Karl stóð á hönd-
um á öxlum Hermans á miðri
línunni, og áhorfeudur gripu
andann á lofti, þegar Karl virt-
ist skyndilega vera að missa
jafnvægið. Loks var það til-