Norðurljósið - 01.01.1976, Side 79
NORÐURLJÓSIÐ
79
Enn er það, að nýfrelsaði maðurinn getur mætt mótspyrnu,
er hann kemur heim. Við mann, sem frelsazt hafði hjá okkur,
sagði kona hans: „Ég skal taka á móti þér sem vínsjúklingi, en
ekki sem kristnum manni.“ Oft getur fólk afturhorfins vínsjúkl-
ings sagt við hann: ,,Það var alveg sjálfsagt fyrir þig að gera
þetta. Þú þarfnaðist hjálpar. Vandamál þitt er ekki vandamál
okkar, svo að við kærum okkur ekkert um þetta kristilega hjá
þér.“ Kjarkinn getur þetta dregið úr nýfrelsuðum manni, jafnvel
komið sem högg á hann. Hann er hreykinn af lífinu nýja, sem
hann hefir eignazt, og dýrðina vill hann gefa Kristi. Nú þarfnast
hann leiðbeininga, hvernig hann skuli bregðast við, er fjölskyld-
an tekur þessa afstöðu. Honum þarf að verða Ijóst, að fólkið
hans getur tekið á móti honum, en hikað við að taka á móti
frelsara hans. Hann skal hvattur til að lifa alveg samkvæmt
vitnisburði hans, sá sæði orðsins og gera málið að bænarefni. Er
tímar líða, getur hann séð dásamleg afturhvörf heima hjá sér.
Við höfum séð heilar fjölskyldur snúa sér til Krists. Leiðbein-
andinn ætti að fræða fjölskyldu mannsins um það, að eignist
hún hlutdeild í andlegri reynslu hans, sé það allra bezta leiðin
til að hjálpa honum.
Fjölskyldu, sem koma vill vínsjúkum ástvini til að leita
hjálpar, ætti sá, sem leiðbeinir, að benda á þessi atriði: (a)
Reynið ekki að knýja hann eða ógna honum til að leita hjálpar.
(b) gefið honum hugmyndina, að hann ætti að leita hjálpar;
verið föst á því, en rekið ekki eftir; (c) farið ekki með hann sem
smábarn; (d) dvelji hann ekki heima hjá sér, haldið uppi sam-
bandi við hann; (e) veitið honum ekki fé til að geta drukkið;
(f) varizt að verða beizk eða hatursfull gagnvart honum; (g)
biðjið aðra, sem til þekkja, að tala við hann; (h) fyrir hjálp
trúar og bænar, gefizt aldrei upp; (i)kennið ykkur sjálfum elcki
um.
Jafnvel þótt afturhorfinn vínsjúldingur hverfi aftur til vínsins,
hætti að þiggja leiðbeiningar og yfirgefi endurhæfingar brautina,
þá getur samt leiðbeinandinn haft samband við fjölskyldu hans
og ætti að gera það. Hún gæti farið að koma í kirkju til að
styrkja trú sína, meðan hún þarf að búa við það vandamál, að
ástvinurinn haldi áfram í vínsýkinni. Mér kemur maður einn í
hug. Hann sneri aftur í áfengið. En seinna fann hann hvöt hjá
sér til að koma aftur og leita hjálpar, af því að fjölskylda hans
hafði snúið sér til Krists og sýndi honum meiri kærleika og