Norðurljósið - 01.01.1976, Qupperneq 121
NORÐURLJÓSIÐ
121
Drottinn dýrðarinnar maður, Matt. 1. 21., og lét deyða sig á
krossi. 1 Kor. 2. 8.
Drykkjaðir einum Anda 1 Kor. 12. 14. — látnir drekka af
einum Anda.
Endurlausn: (a) Lausn frá syndasekt, ásamt fyrirgefning og
réttlæting vegna dauða Krists. Róm. 3. 24., Efes. 1. 7., Kól. 1. 14.
(b) Lausn manna, sem trúa á Krist, frá nærveru og valdi syndar-
innar og frá öllum hrörleika líkamans, þegar Kristur kemur
aftur. Róm. 8. 23., Fil. 3. 20., 21.
Fagnaarboðin, fagnaðarerindið. 1 (a). Boðskapur Jesú, að
Guðs ríki væri í nánd. Mark. 1. 16. (b) Boðskapur hans um Guð
sem föður. Matt. 6. 9. (c) Boðskapur um iðrun og syndafyrir-
gefningu. Lúk. 24. 47. Matt. 28. 19. 2. I prédikun Páls: (a)
Staðreyndirnar um dauða Krists vegna synda vorra, greftrun
hans og upprisu. 1 Kor. 15. 3., 4. (b) Túlkun hans eða skýringar
á þessum staðreyndum og gildi þeirra mönnum til hjálpræðis.
Gal. 1. 6, —12. (c) Þetta var fagnaðarerindið um Guðs náð.
Post. 20. 24. 3. Fagnaðarerindið um Jesúm Krist, Guðs son.
Mark. 1. 1. Róm. 1. 1., 3.
Frumgróði. Hið fyrsta af uppskerunni. 2 Mós. 2316. Kristur
sem frumgróðurinn. 1 Kor. 15. 20., 22. Hann reis fyrstur upp frá
dauðum til að deyja aldrei framar.
Frumgróði Andans. Róm. 8. 23. Fyrsti ávöxtur dauða Krists,
upprisu hans og himnafarar var gjöf heilags Anda þeim til handa,
sem trúa á Drottin Jesúm Krist sér til hjálpræðis.
Fullreynd, fullreyndur. 1 Kor. 11. 19. Fullur þroski, fullþroska
maður í trúnni á Krist eða í samfélaginu við hann. Lífið í trúnni
á Krist er vöxtur andlega, er samsvarar vaxtarskeiðum ævinnar:
Börn, ungir menn og feður — fullþroska menn í Kristi 1. Jóh.
2. 12.-14.
Fyrirdæma, — fyrirdæming — dæma sekan, sakfelling,
strangur dómur.
Gangan eftir anda, í Andanum. Róm. 8. 4., 5. 1 Andanum.
Gal. 5. 16. Hún á að birtast í daglegu líferni þeirra, sem veitt
hafa Jesú viðtöku sem frelsara sínum og Drottni. Hún er líferni,
stjórnað og styrkt af heilögum Anda og birtist sem líf í eftir-
breytni Krists með fullkominni hlýðni, undirgefni, við vilja
Guðs og kærleiksrík breytni, þjónusta, meðal manna.
Gjöra sjálfan þig hólpinn og áheyrendur þína. 1 Tím. 4. 16.
Frelsa sjálfan þig . . . frá valdi syndanna, yfirráðum þeirra. Sbr.
Matt. 1. 21. Frelsunin frá hegningu syndanna, sáluhjálpin, er