Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1942, Page 27
25
faraldur hafi slaðið í sambandi við mjólkurneyzlu, en þrifuui og að-
búnaði við mjólkursölu er að mínu áliti mjög ábóta vant i héraðinu.
5. Barnsfararsótt (febris puerperalis).
Töflur II, III og IV, 5.
Sjúklingafföldi 1933—1942:
1933 1934 1935 1936 1937 1938 1939 1940 1941 1942
Sjúkl........ 9 3 6 6 9 9 7 8 13 14
Dánir ....... 3 2 3 1 3 3 2 1 3 3
Auk hinna 14 sjúklinga, sem skráðir eru á mánaðarskrár í 9 licr-
uðum (Rvík, Hafnarfj., Álafoss, Ólafsvíkur, Sauðárkróks, Ólafsfj.,
Þistilfj., Berufj. og' Keflavíkur), er í ársyfirliti getið 1 sjúklings í
hverju eftirgreindra héraða: Stykkishólms, Hólmavíkur, Hofsós,
Reykdæla og Eyrarbakka.
Læknar láta þessa getið:
Rvik. Skrásett er aðeins 1 kona. Vafasamt, að öll tilfelli af léttari
tebris puerperalis séu talin fram. í St. Jósefsspítala er getið um 1
abortus septicus og í sjúkrahúsi Hvítabandsins um 1 abortus febrilis.
Báðum þessum sjúklingum batnaði.
Hafnarfj. 1 sjúklingur er skráður. Sjúkdómurinn vægur. Batnaði
fijótlega af súlfalyfi.
Ólafsvikar. Eitt tilfelli, konan lifði.
Stijkkishólms. A mánaðarskrá er ekkert tilfelli greint af barnsfarar-
sótt, en 1 kona fékk hana eftir barnsburð. Vatn var farið fyrir 4 dög-
um, og gekk fæðing seinlega, svo að leggja varð töng á höfuð. Á 3.
degi fékk konan hita, mestan 38,5 stig, lá í 3 vikur og hefur síðan
heilsazt vel.
Reykjarfj. Varð ekki vart, en kona á Djúpuvík fékk ígerð í spangar-
sprungu og lá með hita um tíma.
Sauðárkróks. 1 tilfelli. Var það 20 ára primipara. Hafði fæðing g'eng-
ið frekar seint, en þó án annarra aðgerða en pitúitríngjafa. Vciktist
hún allhastarlega strax á öðrum degi og var lengi að batná, en varð
þó að lokum alfrísk.
Hofsós. 1 tilfelli, sem féll niður af mánaðarskrá.
Ólafsfj. 2 konur, fjölbyrjur, veiktust. Báðar fæðingar eðlilegar
og engar aðgerðir. Prontosíl dugði vel, og lágu konurnar stutt.
Akureyrar. Barnsfararsóttar hefur ekki orðið vart á árinu. Að vísu
uiunu vera einhverjar sængurkonur, sem fengið hafa einhvern lítils
háttar hita í sængurlegunni, en engin það mikinn eða alvarlegan, að
læknar hafi talið, að um reglulega barnsfararsótt hafi verið að ræða.
Reykdæla. 1 kona mun hafa fengið barnsfararsótt. Fór ekki til
hennar, en ráðlagði súlfanilamíð i síma. Batnaði.
Bcrufj. 1 kona veiktist af legbólgu með köldu og háum hita á 6. degi
eftir eðlilega fæðingu. Batnaði fljótt og vel við súlfanilamíð. Önnur
kona fékk æðabólgu á 5. degi, sömuleiðis eftir eðlilega fæðingu, og er
ekki nærri því jafngóð enn þá eftir 4 mánuði.
4