Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1942, Side 36
34
Ögur. 5 tilfelli skráð með lungnabólgu, 2 dóu, annað hvítvoðungur,
sem fékk kikhóstalungnabólgu, hitt maður um nírætt.
Hesteyrar. Af 11 skráðum tilfellum álít ég', að 8 falli undir „pneu-
monitis“ á allsvæsnu stigi, en hin 3 tilfellin hafi verið „venjuleg“
kveflungnabólga. Enginn sjúklingur dó. Fengu allir M & B 693, en mér
virtist það lítil áhrif hafa á „pneumonitis".
Hólmavíkur. Kom fyrir, einkum með kvefsóttarfaraldrinum.
Miðfj. Óvenjulega mörg tilfelli, aðallega sem fylgikvilli kikhóstans.
1 barn innan 1 árs dó.
Blönduós. Lungnabólga gerði allmjög vart við sig í sambandi við
kveffaraldur þann, er gekk um sumarið og varð 1 aldraðri konu að bana.
Sauðárkróks. Verður talsvert mikið vart á árinu, mest í sambandi
við stærstu kveffaraldrana.
Ólafsfj. M & B 693 reyndist vel sem undanfarið, og lifðu allir
lungnabólgusjúklingarnir.
Svarfdæla. Nokkur tilfelli, einkum upp úr kvefsóttinni.
Höfðahverfis. Komið fyrir nokkur tilfelli. M & B-töflur þeg'ar gefnar,
og' sjúklingunum batnað fljótt og vel.
Öxarfj. Allir lungnabólgusjúklingar fengu dagenan, og enginn dó.
Ekki er vandalaust að beita lyfinu, en fólk virðist sækja í að fara
með það eins og aspirín, og nú er farið að heimta það handa rollum.
í þessu viðlenda héraði er nauðsynlegt, að það sé til á 1—2 stöðum
í hreppi, og' er séð um það, en auk þess eiga ýmsir lyfið, sem hafa
þurft að nota það. Að sumu leyti hefur það reynzt illa, hve lyfið er
komið víða, og ýmsir þjóta í að nota það án læknisráðs, sem ekki má
eiga sér stað. Greinilega hreiðraði lungnabólga um sig á 3 samliggj-
andi heimilum og var þar faraldur.
Seijðisfj. Upp úr kvefsóttinni. Dagenan er þar ómetanleg hjálp.
Sjúklingum virðist orðið ljóst, að um að gera sé að sækja lækni í
tima og' fá lungnabólgumeðal, þá sé öllu borgið.
Fáskrúðsfj. Ollum gel'ið súlfapýridín með góðum árangri.
Berufj. 1 barn á 1. ári dó úr veikinni.
Síðu. Nokkuð bar á henni sem fylgikvilla með kvefsóttinni, er gekk
um héraðið seinna hluta sumarsins og fram á vetur. 2 gainlar konur
dóu, báðar fjörgamlar, önnur á tíræðisaldri.
Vestmannaei)ja. Gerði með meira móti vart við sig á árinu, eink-
um sem fylgikvilli kvefsóttar. Læknar nota mikið súlfanilamíð, og
þykir það gefast vfirleitt vel.
Rangár. Var með langalgengasta móti þetta ár, helzt í börnum.
Enda var hér mikið um bæði kikhósta og kvefsótt, sem eru orsök
þess, hve lungnabólgutilfellin eru mörg.
Grímsnes. Allmörg tilfelli. Einkum samfara kveffaraldrinum. 1
sjúklingur dó þrátt fyrir súlfapýridín, kona milli 40—50 ára. Virtist
allt ætla að ganga vel í fyrstu. Hitinn féll eftir fáa daga. Eftir að hafa
verið hitalaus 1 dag', hækkaði hitinn á ný, og dó konan eftir fáa
daga. Ótvírætt minna árangurs að vænta af súlfapýridínmeðferð við
hronchopneumonia en pneumonia crouposa.
Keflavíkur. Mörg börn fengu kveflungnabólgu upp úr kvefsótt, og
dóu 2 ungbörn.