Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1942, Side 37
35
2 U m t a k s ó 11:
Læknar láta þessa gelið:
Rvik. Stakk sér niður allt árið. Var ekki mannskæð. Hina lágu
dánartölu síðustu árin má vafalaust þakka lungnabólgulyfinu súlfa-
pýridín.
Hafnarfi. 87 ára gamall maður dó af hennar völduni.
Olafsviknr. Barn á 1. ári dó.
Dala. 1 dauðsfall. Gamall maður og farinn.
Bíldudals. 2 skráðir, annar dó, 75 ára kona, mjög hrum orðin.
Flateyrar. Örfá lungnabólgutilfelli sá ég upp úr kikhóstanum, en
þau voru öll væg.
Hóls. Taksótt fengu 2 sjúklingar í október. Ung stúika og gamall
niaður yfir sextugt. Voru notáðar dagenantöflur og reyndust prýði-
)ega. Sá sjúkdómur hefur ekki verið hér í 8 ár.
Isafi. Fleiri tilfelli en undanfarin ár, flest afleiðingar kikhóstans.
2 dóu.
Reykjarfi. 2 veiktust í desemher upp úr kvefinu. Fengu súlfapýridín
og batnaði fljótt af því. Gamall maður varð fárveikur af lyfinu, varð
afar þungt um andardrátt og órór, rænuskertur, svefnlaus og afar
máttvana. Hresstist þó vonum framar.
Miðfi. Flesta mánuði ársins einhver tilfelli. Mjög oft um heysjúka
nienn að ræða.
Hofsós. Allmörg tilfelli á árinu, 2 aldraðar konur dóu.
Ólafsfi. Ég hef orðið var við, að aðkomufólk og fólk héðan, sem
dvalið hefur annars staðar, t. d. á Siglufirði og víðar, hefur komið með
súlfanilamiðlyf upp á vasann og þá sérstaklega „lungnabólgutöflur“.
Eru þær notaðar við öllum mögulegum og ómögulegum kvillum,
fannpínu o. s. frv., teknar í algerlega gagnslausum smáskömmtum.
Brýtur smámola úr töflu handa krökkum og hefur það eftir læknum,
að það saki ekki. Fólkið hefur afskaplega oftrú á þessum lyfjum,
enda er ásælni almennings mikil í þau og álítur þau allra meina bót,
en helzt til mikil finnst mér undanlátsemi lækna að ávísa þeim.
Reykdirla. Dásamlegur árangur af súlfapýridini. Ölluni batnaði.
Vopnafi. Upp úr kvefi nokkur lungnabólgutilfelli — - pneumonia
rrouposa —• þeirra á meðal voru 2 aldraðar konur og 1 karlmaður.
hatnaði þeim öllum fljótt og vel af dagenantöflum.
Norðff. Varð ekki vart á árinu.
Síðu. Reyndist dagenan vel eins og áður. Karlmaður á fertugsaldri
fékk þó afturkast og liafði notað nokkuð mikið al' dagenantöflum, en
var orðinn með normalhita og virtist úr allri hættu, en fékk þá skyndi-
fega óþolandi verk í brjóstið og dó að stuttum tíma liðnum. Taldi Mýr-
dalslæknir, sem var staddur á bæ nærri sjúklingnum og strax sóttur,
að þarna hefði verið um blóðtappa að ræða.
Mýrdals. Dagenan gafst prýðilega.
Vestmannacyja. Fremur sjaldgæf, samanborið við kveflungnabólg-
l<na. Venjulegast skjótur bati með dagenan, en vel skal þess gæta að
hætta ekki þegar notkun lyfsins og sótthiti hverfur, og ber þess og að
úæta við lcveflungnabólguna. Bólgublettir sjástgreinilega við skyggningu
lungum, eftir að sótthiti er horfinn, og geta verið allstórir. Hvort lyfið