Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1942, Síða 42
40
kenni h-afa aldrei komið fram í. Eg viðhafði bólusetningu í kikhósta-
faraldri á Þórshöfn, en sökum fjarlægðarinnar frá Reykjavík fékk
ég' bóluefnið svo seint, að áhrifa þess gætti lítið. Börnin munu hafa
verið smituð, áður en þau voru bólusett. Enn fremur. ekki nema
þrisvar dælt i þau þá, en nú 4 sinnum. 3 börn dáin, öll óbólusett og
fengu öll bronchopneumonia.
Ólafsvíkur. Gekk hér allsvæsinn í júlí og ágúst. Fjöldinn hafði
rerið bólusettur.
Stykkishólms. Barst inn í héraðið í aprílmánuði frá Rvík. Kom
fyrst upp úti í Eyrarsveit og hefur verið að stinga sér niður fram i
nóvemberlok. Lagzt létt á sjúklingana og enginn dáið. Síðara hluta
marz og í april voru 285 börn — þar af 43 börn í Staðarsveit — bólu-
sett. Um árangur get ég eigi sagt neitt með vissu, því að eftirgrennslan
hefur verið lítil og eigi hægt að bygg'ja dóm á henni uni það, hvoru
meira megi þakka það, að veikin var meinlaus og létt, óvenjulega
léttum faraldri eða bólusetningunni.
Dala. Öll tilfellin í Saurbæjarhreppi, 2 utan héraðs voru væg'. Varð
ekki að faraldri. í Búðardal voru nokkur börn bólusett gegn kikhósta.
Patreksfj. Barst í héraðið í júni og var viðloðandi fram í nóvem-
ber.
Bildudals. Gekk héi> mánuðina maí—ágúst. Var yfirleitt mjög
vægur, enda öll börn bólusett, nokkru áður en veikin barst hingað.
Flateyrar. Barst í héraðið í maí. Ég bólusetti flest öll börn í hér-
aðinu 3—4 sinnum. Bólusettu börnin veiktust nær öll, en vægt, og
ég held frekar, að það hafi að einhverju leyti verið bólusetningunni
að þakka. Hér vantar enn þá samanburð, svo að ekkert er hægt að
fullyrða í því efni.
Hóls. Gekk hér að sumrinu, mest í ágúst og septemher. Höfðu börn
nokkru áður verið bólusett gegn veikinni. Yfirleitt mátti sjúkdóm-
urinn kallast vægur. Ekki finnst mér hægt að gefa úrskurð um það,
hver áhrif bólusetningin hafði á áhrif útbreiðslu og' gang sjúkdóms*-
ins. 1 sjúklingur fékk kveflungnabólgu með kikhóstanum, barn á
I. ári. Lifði. Enginn sjúklingur dó.
ísafj. Þegar fréttist til kikhósta i Reykjavík í marz, var þegar hafizt
handa um útvegun bóluefnis og haft eftirlit með ferðum fólks til
bæjarins. Síðan voru bólusett öll börn frá % árs aldri upp í 6—8 ára
4 sinnum. %—t sm3 var gefinn í hvert sinn með 3—4 daga milli-
bili milli fyrstu þriggja og síðan eftir viku. Tvenns konar bóluefni
var notað, enskt (Wellcomes) og íslenzkt (Dungal). Af islenzka bólu-
efninu var gefinn helmingi stærri skammtur en af þvi enska. Fyrstu
kikhóstatilfellin komu í maímánuði og þau síðustu í september. Eng-
inn vafi leikur á því, að hólusetningin hefur stórlega dregið úr kik-
Iióstanum. Fjöldinn af bólusettu börnunuin slapp, sérstaklega þó þau,
sem bólusett voru með Wellcomesbóluefni. Þau börn, sem urðu veru-
lega illa úti, voru öll óbólusett, og eins þau, sem dóu. Áberandi er.
live fá koinu á skrá, aðeins 94 tilfelli á móti 324 í síðasta faraldri
1935.
Ögur. Aðeins 7 tilfelli koma á skrá. Kikhóstaárið 1935—36 komu
50 tilfelli á skrá. Þessi mildi munur stafar efalaust af betra bólu-