Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1942, Síða 43
41
setningarárangri. Hávaðinn af börnuni í héraðinu innan <S ára voru
bólusett 4 sinnura með Wellcomes bóluefni, % sm3 í hvert sinn
undir hiið á upphandlegg með 3—7 daga inillibili. Bólusetningu var
víðast hvar lokið í apríl, en kikhóstinn kom fyrst inn í héraðið í
júlí—ágúst. Bólusettu börnin fengu flest mjög vægan hósta eða engan,
en þau óbólusettu — vegna æsku — fengu hann miklu þyngri.
Hesteyrar. Eg gaf fólki í Jökulfjörðum, Aðalvík og á Hesteyri kost
á að fá börn sín bólusett, og bólusetti ég sámtals 45 börn. Eg bólu-
setti öll börnin 4 sinnum á h. u. b. viku fresti. Þetta er tafsamt verk,
eins og til hagar, og engu fyrirhafnarminna, þótt börnin séu fá. Eg
iét fólkið greiða 12 krónur fyrir barnið, og að kostnaði frádregnum
varð ekkert eflir fyrir skósliti. En það er gott og blessað, ef maður
hefði getað séð einhvern árangur, svo að ekki yrði um villzt, en það
er eiginlega ógerningur að ganga úr skugga um árangurinn. Bæði
er það, að 45 börn er ekki há tala, og svo var eklti um neinn lilið-
sjónarhóp að ræða, því að öll börn á þessu svæði, sem ekki höfðu
þegar fengið kihhóstann, voru bólusett utan eitt, og það fékk allsvæs-
inn kikhósta. Vitaskuld verða engar ályktanir dregnar af því. Annars
var veikin tiltölulega væg á öllum nema 2 börnum, að því er ég bezt
veit, en þó var hún ekki ákaflega svæsin á þessum 2. Athugul og
greinargóð kona á Hesteyri sagði mér, að þetta væri enginn kikhósti
nema að nafninu til, heldur bara krælingur. Ekkert barn dó úr kik-
hósta eða af afleiðingum hans. Á Ströndum mætti til sanns vegar
færa, að um hliðsjónarflokk hafi verið að ræða, því að þar var ekkert
barn bólusett, slíkt var ókleift. En það gerir strik í reikninginn, að
þangað norður barst kikhóstinn ekki nema tli Bolungarvíkur og var
þar frekar vægur.
Hólmavíkur. Byrjaði að ganga seinna part ársins.
Miðfj. í maímánuði barst kikhósti í héraðið, og veiktust margir af
honum. Hélzt faraldurinn þar lil í október. Flest börn hér á Hvamms-
tanga .og í 3 hreppum kikhóstabólusett. Ekkert þessara barna fékk
kveflungnabólgu, en meðal hinna, er ekki voru bólusett, kom hún
fyrir nokkrum sinnum. Vafasamt virtist mér, hvort bólusetningin
gerði veikina nokkuð vægari.
Blönduós. Barst inn í héraðið í júlí, og voru skrásett ný tilfelli fram
í október. Sennilega hafa ekki líkt því öll kurl komið til grafar, því
að hann var yfirleitt rnjög' vægur. Um vorið, þegar til hans fréttist,
bólusetti ég' fjölda barna, alls um 135, og tel ég það eiga sinn þátt í
því, hversu lítið varð úr honum. Annars gaf ég flestum krökkum,
sem leitað var til mín með vegna kikhóstans, C-vítamín og mörgum
ekkert annað. Ég hef aldrei séð nálægt því eins vægán kikhósta og
þann, er nú gekk, en fleira kemur til greina. Fjöldi barna kemur til
bólusetningar, og þessi faraldur var í upphafi talinn vægur. Til marks
um þetta er það, að ég' var ekki sóttur út í sveit vegna kikhóstaps
nema i 3 skipti alls, þótt hann gengi um allt eða mestallt héraðið.
Sauðárkróks. Þegar fréttist um, að kikhósti hefði borizt til landsins,
var hafizt handa um að útvega bóluefni og byrjað á bólusetningu
við veikinni, jafnskjótt sem bóluefni var fengið, en það fékkst lítið
eitt i febrúar, en aðallega í marz og apríl. Voru bólusett 90 börn á
fi