Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1942, Side 45
sem sloppið höfðu við hann. með barni frá Reykjavík. Yfirleitt frekar
vægur. Enginn dó.
Reykdæla. Breiddist nokkuð út í Mývatnssveit í marzmánuði, en
náði engri útbreiðslu annars staðar í héraðinu.
Ozarfi. Barst með dvalarbörnum inn í héraðið, en náði engri út-
breiðslu, enda sópaðist hér yfir fyrir 7 árum.
Vopnafi. Fyrra hluta apríhnánaðar gerði kikhósti vart við sig í
Vopnafjarðarkauptúni. Veiktust 3 börn, og voru 2 þeirra allþungt
haldin, liöfðu ákaft sog, lungnakvef, auk þess sem eitt þeirra fékk
kveflungnabólgu. Bólusetning hófst í kauptúninu 17. apríl, en í sveit-
inni 18. apríl, og var henni haldið áfram til 11. júlí. Alls voru bólu-
sett 73 börn, 19 í kauptúninu og 54 í sveitinni. Fullkomna bólusetn-
ingu, þ. e. 4 innspýtingar, fengu öll börnin nema 5 af sveitabörnun-
um, sem aðeins fengu 1 innspýtingu. Hver varð svo árangurinn? Mér
virðist hann í stuttu máli sá, að kikhóstinn hafi algerlega verið kveð-
inn niður með þessum aðgerðum. Af hinum bólusettu börnum fengu
að vísu 8 kikhósta, sem full vissa er um. Öll fremur vægan og mjög
vægan nema 1, sem fékk álíka þungan kikhósta og fyrstu óbóluséttu
börnin. ÖIl virtust þau hafa smitazt, áður en bólusetningu lauk.
Seyðisfj. Barst hingað í júní. Höfðu ])á flest öll yngri börn verið
bólusett gegn veikinni. Yfirleitt var veikin væg. 2 börn með leynda
herkla fengu tbc. hili upp úr kikhóstanum. Ekki varð séð, hvaða gagn
bólusetning hafði gert. Nokkur óbólusett börn urðu ekki verr úti
en hin.
Norðfj. Gekk í héraðinu allan seinna hluta ársins frá því í júní.
Allmikið hafði verið gert að bólusetningu í maí og byrjun júní —
rúmlega 100 börn. Mér vannst aldrei tími til að rannsaka árangurinn
uð neinu gagni. Mörg munu hafa veikzt af þeim bólusettu. Enginn
sjáanlegur munur á ensku og íslenzku bóluefni.
Fáskrúðsfj. Barst hingað í héraðið í maímánuði með barni úr
Reyk javík. I aprílmánuði voru bólusett gegn kikhósta 07 börn, flest
í Búðakauptúni. Þau börn, sem bólusett voru, veiktust annað hvort
ekki eða fengu sóttina væga og voru miklu skemur veik en hin, sem
óbólusett voru. Bar mest á þessum mismun fyrstu 2—3 mánuðina,
sem sóttin gekk.
Berufj. Fluttist á 1 bæ í Breiðdal, en breiddist ekki út. Enn fremur
fluttist hann hingað í þorpið, en kom aðeins i fá hús og dó svo út.
Kom það sér vel, að hann varð hér ekki útbreiddur, því að um sama
leyti fæddist hér mesti fjöldi af börnum, eftir því sem hér gerist.
011 börn 5 ára og yngri voru bólusett gegn kikhósta.
Mýrdals. Barst til Víkur með stúlku frá Reykjavík, sem dvaldist
bér um páskana. Flesl öll börn voru bólusett, og yfirleitt var veikin
væg. Þó dóu 2 ungbörn, sem bæði voru lítilfjörleg fyrir.
Vestmannaeyja. Veikin barst hingað rétt upp úr áramótum og náði
bámarki i maí. Veikin dó út í september. Var yfirleitt væg. Dóu þó
úr henni 6 börn, sem flest öll fengu lungnabólgu, sum krampa. Lækn-
ar hér bólusettu börn gegn veikinni. Veikin var yfirleitt væg nema
á yngstu börnunum. Má vera, að eitthvert lið sé að bólusetningu, og
ég held, að læknum hér hafi fundizt það. Eg hafði um 20 börn til at-