Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1942, Page 76
74
urneyzla er hér, vegna þess að í'lest heimili í þorpunum liafa kýr og
kindur, og lítill markaður er fyrir mjólkursölu. Langflest börn fá lýsi
snemma.
Blönduós. Avitaminosis er áreiðanlega nokkuð algeng, en venjulega
aðeins á lágu stigi. Alltaf finnst við skólaskoðun nokkuð af börnum
með beinkramarskekkjur á rifjum, og pasturslítil smábörn taka oft
góðum framförum við að fá C-vítamínsaft. Hér er mjólkurneyzla mikil
og þetta hérað því tiltölulega vel sett, enda hafa bændur ekki tekið hér
upp það hagkerfi að setja heimili sín i mjólkursveltu til þess að geta
aflað sér litaðs sykurvatns og smjörlíkis, eins og tíðkast sums staðar,
þar sem mjólkursamlög eru.
Ölafsfj. Ætíð nokkur tilfelli af beinkröm á lágu stigi, einkum á
ungbörnum. 1 dreng, 4 ára, úr sveitinni rakst ég á með beinkröm á
háu stigi.
Höföahverfis. Rachitis: 6 mánaða barn, sem fékk kikhósta, hafði
öll rachitiseinkenni, en batnaði, er það hafði yfirstigið kikhóstann og
fengið lýsi. Gera má ráð fyrir, að einhver brögð séu að Bi-vítamín-
skorti hér, ef nokkuð má ráða af, hve margir kvarta hér um alls konar
„gigt“. Hef ég gefið töluvert af Bi-vitamínum og séð góðan árangur
í sumum tilfellum.
Fáskrúðsfj. Avitaminosis, svo að á beri, er sjaldgæf hér. Sá 1 vægt
rachitis-tilfelli á árin. Beriberi-sjúklingar þeir sömu og áður. Virðast
standa i stað.
Berufj. Bi-avitaminosis hef ég talið í 1 sjúklingi. Var jiað sjó-
maður, og kvartaði hann um verki og þreytu í öklaliðum og kálfum.
Taldi hann sig verða að hætta starfi sínu, ef hann fengi ekki bót á
þessu. Af því varð þó ekki, því að hann varð albata á skömmum tíma
ineð Bi-vítamingjöf.
Vestmannaeijja. Helzt ber á B-skorti, einkum á þeim, sem hafa maga-
kvilla og einskorða sig við hveitibrauðsát og annan þann mat, sem
gersneyddur er þessum bætiefnum. Sjúklingum þessuin batnar tíðast
við B-inndælingar og viðeigandi mat. Rachitis á börnum fátíð, enda
allt gert til að fyrirbyggja hana, þorskalýsi, geislað lýsi og ljós.
Rangár. Alltaf nokkur tilfelli af vægri rachitis í börnum af of ein-
hliða mjólkurgjöf, sérstaklega í þeim börnum, sem ekki hafa verið
■\anin af pela fyrr en seint og' síðar meir. Batnaði venjulega fljótt við
lýsisgjöf og' breytt mataræði. Eitt og' eitt tilfelli af vægum skyrbjúg.
Grímsnes. Beinkröm fátið.
7. Diabetes.
Siglufj. Getið eins sjúklings, karlmanns 40—60 ára.
Akureyrar. 2 sykursýkissjúklingar eru hér, eins og um getur í árs-
skýrslu 1941, og fá sykursýkisfæði og insúlín.
Segðisfj. 12 ára stúlka frá Borgarfirði kom á sjúkrahúsið með sykur-
sýki á allháu stigi, að því er virtist. Sendi ég sjúklinginn á Landsspítal-
ann. Annars finnst sykur aldrei i þvagi hér.
Fáskrúðsfj. Sjúklingar þeir sömu og áður. Líðan þeirra góð.
Siðu. Rúmlega fimmtugur bóndi.
Vestmannaegja. 2 sjúklingar með veikina í héraðinu, karl og kona,