Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1942, Síða 77
75
náskyld. Karlmaðurinn hafði mjög illkynja og þunga tegund veikinnar,
alltaf á sjúkrahúsi. Fær stöðugt insúlín tvisvar á dag.
8. Eczema.
Sykkishólms. 14 tilfelli.
Ögur. Eczema og' aðrir húðsjúkdómar færast mjög í vöxt hin síðari
árin og aldrei meira en nú. Virðist eitthvað standa í sambandi við mat-
væli frá Ameríku.
Ólafsfj. Nokl tur tilfelli, flest gömul. 2 konur fóru til röntgenmeð-
ferðar, en hefur tekið sig upp á báðum.
Akureyrar. Ofsakláði og eczema eru hér tiltölulega algengir sjúk-
dómar.
Höfðah'verfis. Nokkur tilfelli.
Seyðisfj. Með meira móti borið á því, aðallega í andliti og efri út-
limum, án þess að ég hafi getað gert mér grein fyrir orsök þess.
9. Emphysema pulmonum.
Ólafsfj. 2 sjiiklingar eru hér með þann kvilla.
10. Epilepsia.
Ólafsfj. 1 sjúklingur í héraðinu.
11. Erysipeloid.
fíorgarncs. Séð-einstöku tilfeili.
Dala. Getið eins sjúklings á mánaðarskrá í september.
Hólmavíkur. Kemur fyrir í sláturtíð og einnig á öðrum tiinum í
hraðfrystihúsunuin við flatningu fisks.
illiðfj. Getið 8 sjúklinga á mánaðarskrá, í júlí 1, sept. 4, okt. 3.
Sauðárkróks. A haustin og framan af vetri ber alltaf talsvert á
erysipeloid.
Akureyrar. Gerði nokkuð vart við sig i sláturtíðinni eins og að und-
anförnu.
Höfðahverfis. 3 sjúklingar kornu til mín með þennan kvilla. I öll-
Um tilfellunum hafði viðkomandi verið að fást við slátur (kindum
lógað). Læknuðust með rívanólbökstrum 1 % og prontosíl.
Seyðisfj. Erysipeloid, sem maður sér alltaf mikið af í sláturtíðinni,
'ar lítið áberandi nú.
Xorðfj. 4 tilfelli — 1 í júlí, 3 í október.
Fáskrúðsfj. 3 tilfelli í sláturtíðinni.
Berufj. Allmörg tilfelli í sláturtíð.
Vestmannaeyja. Nokkur tilfelli á árinu frá hráæti af fiskbeinum og
eins í sláturtíð.
12. Furunculosis, panaritia etc..
Dnla. Fingurmein ö, furunculosis nuchae 2, bursitis olecrani 1,
osteomyelitis 1.
ísafj. Hverfandi lítið um fingurmein, og nni þakka það hreinlæti
sjómanna og hversu fljótt er leitað læknis, ef með þarf.
Reykjarfj. Ég hef fengið 5 tilfelli til meðferðar í haust. Þetta er
tiður kvilli á síldarvertíðum.
Hólmavikur. Algeng, einkum á sjómönnum.
Ólafsfj. Furunculi höfðu 21 sjúklingur og panaritia 20, engin slæm.