Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1942, Síða 79
77
nef- og augnrennsli. Eg inóculeraði manninn með 19 mismunandi
efnum, og gáfu 5 jákvætt svar í 5% glýserínsaltextrakti. Hlöðuryk
-j—|—{-, steinbítur -)—{-, eggjahvíta +, myglugró + og mygluþræðir -j-.
Maðurinn er aðalstoð fullorðinna foreldra á góðri jörð með stóru búi
og á að taka við, en þetta hamlar.
18. Lymphangitis.
Þingeyrar. Frá byrjun september kom fram einkennileg kássa af
lymphangitis. Mátti svo lieita, að hver maður, er fékk á sig skrámu,
fengi lymphangitis. Stóð þessi faraldur fram yfir sláturtíð og' einkum
m.eðan hún stóð yfir, enda hættara við, að fólk skæri sig eða hruflaði
á því tímabili.
19. Migraene.
Ögur. 2 systur höfðu sjúkdóminn á háu stigi. Regluleg hálfsmán-
aðarköst í heimahúsum og í hvert sinn, er farið var á hestbak. Svæs-
inn höfuðverkur í hálfu höfðinu öðru hvoru megin, uppköst og
flygsur fyrir augunum. Kemur til mála ofnæmi fyrir hestum.
20. Morbus Basedowii.
Miðfi. 1 sjúklingur, kona 52 ára, skorin upp í Reykjavík og' dó þar.
21. Morbus coeruleus.
Miðfi. 1 tilfelli, barn, sem aðeins lifði nokkra daga.
22. Morbus cordis.
Ðala. Hjartabilun er allalgeng, einkum þó í eldra fólki.
Reykjarfi. 1 sjúkling hef ég séð með þennan kviila, og er hann illa
baldinn.
Grímsnes. Hjartasjúkdómar eru tíðir, einkum í fullorðnu fólki.
23. Oxyuriasis.
l)ala. 3 tiifelli, börn.
. Reykjarfi. 2 tilfelii, batnaði vel.
Hólmavíkur. Ekki óalgengur, einkuin í börnum.
Ólafsfi. Alltaf nokl cur tilfelli á börnum og jafnvel fullorðnum og
gengur erfiðlega að uppræta, mest að ég held fyrir trassaskap fólksins.
Norðfi. Er víst algengur kvilli, meira en þau tilfelli benda til, sem
ég hef skráð. Til einnar telpu á 4. ári var ég kallaður 3svar, alltaf ný-
háttaðrar, er hún var að tryllast og greip alltaf neðan um sig. í 3.
skiptið tókst mér að koma auga á orm einn spriklandi á endum í vulva.
Hin skiptin hefur hann víst verið þveginn eða nuddaður burtu. For-
eldrarnir og eldri systir höfðu hann líka, án þess að athugað hefði
Yerið. Ekki tekst lækning alltaf vel, þó að sjúklingarnir fái skriflegar
1-eglur að fara eftir.
Fáskrúðsfi. Talsvert algengur kvilli hér, bæði í börnum og fullorðn-
uni. Stundum virðist santonín ekki koma að haldi, þrátt fyrir endur-
teknar gjafir í stórum skömmtum.
Rerufi. Alltaf nokkur tilfelli.
Mgrdals. 8 tilfelli, algengur.
Vestmannaeyja. Er töluvert algengur kvilli. Getur á stundum ert
botnlangatotuna og valdið bólgu i henni.