Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1942, Qupperneq 95
93
Reijkjarfj. Læknis er ekki vitjað til fæðandi kvenna í þessari sveit,
nema eitthvað sé að. Fæðingar gengu allar vel. Konum og börnum
heilsaðist vel. Eitt fósturlát varð á árinu með töluverðum eftirblæð-
ingum, batnaði eftir evacuatio uteri. Fáir hugsa um takmörkun barn-
eigna. Fóstureyðingar biður enginn um.
Hólmavíkur. Viðstaddur 12 fæðingar. Oftast lítið tilefni. Einu sinni
gerð vending og framdráttur vegna langvarandi og erfiðrar fæðingar.
Miðfi. Var vitjað 13 sinnum til sængurkvenna, oftast til að deyfa.
I tangarfæðing og 1 framdráttur við sitjandafæðingu. 1 abortus incom-
pletus. Gerð enucleatio uteri.
Blönduós. Barnsfarir með mjög svo eðlilegum hætti. Samkvæmt
skýrslum ljósmæðra bar hvirfil að í öll skipti, öll börnin fullburða og
með fullu lífi nema 1, sem lifði þó. Læknishjálp þurfti ekki aðra en
þá að herða á sótt og deyfa, að því er innanhéraðskonur snerti. Aftur
á móti var ég einu sinni sóttur vestur í Víðidal í forföllum héraðs-
læknisins á Hvammstanga til 25 ára frumbyrju, sem taka varð barnið
hjá með töngum vegna sóttleysis. Fósturlát komu fyrir í 2 skipti, tók
ég aðra konuna á sjúkrahúsið og skóf legið vegna blæðinga, en í
hinu tilfellinu var konan meira en hálfgengin með tvíbura, sem ég
gerði framdrátt á, og varð að sækja fylgjuna, sem var föst. Konunum
heilsaðist öllum vel.
Sauðárkróks. 24 sinnum vitjað til fæðandi kvenna. í flestum til-
fellum var aðeins um það að ræða að deyfa konuna eða herða á lin-
nin hríðum. Engin tangarfæðing. Einu sinni retentio placentae, náðist
við Credé i svæfingu. 1 tvíburafæðing. í eitt skipti var gerður partus
srte praematurus, 32 ára Il-para, 7 árum áður mjög erfið fæðing
fbarnið tekið með hárri töng). Konan er mjög lítil og hefur þrönga
grind. Vantaði um 3 vikur upp á fullan meðgöngutíma. Gekk fæð-
•ngin vel, móður og barni heilsaðist vel. 1 barn fæddist vanskapað,
stórt cephalocele, (i fingur á báðum höndum og 6 tær á báðum fót-
II m. Dó. Móðirin hafði áður fætt vanskapað barn, er dó strax. 1 kona
Jékk barnsfararsótt (sjá áður). Ljósmæður geta ekki um fósturlát
1 skýrslum sinum, en 4 sinnum var læknis vitjað vegna fósturláts, og
komu 2 af konunum síðan til aðgerða á sjúkrahúsi. 1 kona fékk
ruptura tubae e graviditate extrauterina. Var hún ópereruð og komst
til heilsu.
Hofsós. Læknir sóttur til 9 sængurkvenna á árinu. Einu sinni gerð
'ending á fót og framdráttúr. Töng notuð þrisvar. Engra fósturláta
getið í bókum ljósmæðra. Enginn abortus provocatus. Enginn Jeit-
f'ði ráða um takmörkun barneigna.
Ólafsfi. 7 sinnum vitjað til sængurkvenna. Tilefnið oftast ósk um
úeyfingu og tregar hríðir. Allmikil eftirblæðing einnar frumbyrju.
Svarfdæla. Læknir viðstaddur 13 fæðingar. í 3 skipti föst fjdgja. í
t skipti gerð sectio caesarea á Akureyrarspítala.
Akureyrar. Hvað viðvíkur abortus provocatus er sú aðgerð aðeins
fi'amkvæmd á sjúkrahúsi Akureyrar, og' í þeim sárafáu tilfellum, sem
s*ík aðgerð hefur verið framkvæmd, hefur alltaf verið um strangar
'Uedicinskar indicationir að ræða.
Höfðahverfis. Tvívegis vitjað til sængurkvenna. í annað skiptið var
L.