Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1942, Page 97
95
ekki fáanlegar til húsverka nema þá á því kaupi, sem almenningur
treystir sér ekki að greiða, einkum þó barnafjölskyldur. Mestu vand-
kvæði eru oft á því, að konur ali börn í heimahúsum vegna fóllcs-
eklunnar, og ala sumar konur nú börn á sjúkrahúsi af þessum sökum,
og fjölgar þeim stöðugt, sem það g'era. Áður var ekki hægt að fá kon-
ur á sjúkrahús undir þeim kringumstæðum nema í lífsnauðsyn, ef
sectio caesarea þurfti að gera eða því um líkt. Full nauðsyn er því
á því, að fæðingarheimili taki til starfa í hinum stærri héruðum, ef
þessu á að halda áfram. Placenta praevia: 2 konur, gerð sectio caesarea
á báðum og heilsaðist öllu vel 1 eclampsia post partum (nýafstaðin
fæðing), Stroganoffsmeðferð. Batnaði. Mér þyldr tala fósturláta í hér-
aðinu, þ. e. 0, sem vitað er um og ljósmæður gefa upp, umhugs-
unarefni, án þess þó að geta með vissu nokkra skýringu á þessu gefið.
Grímsnes. II sinnum vitjað. 1 sinni gerð perforatio á dauðu barni
vegna grindarþrengsla. Episiotoinia gerð á primipara með óeftirgef-
anlegt perineum. Framdráttur gerður tvisvar við sitjandafæðingar,
annað skijjtið seinni tvíburi. Einu sinni var ég' gabbaður á þann hátt,
að kona taldi sig þurfa á læknishjálp að halda vegna fæðingar, er hún
taldi byrjaða. Þegar ég leit á konuna, var enga þykkt að sjá. Hún sagði,
að blætt hefði öðru hverju um „meðgöngutímann“, og stóð nú ein
slík blæðing yfir. Hélt konan því fast fram, að hún hefði fullgengið
með og fæðing væri byrjuð. Við exploratio fannst legið aftursveigt,
on eðlilegt að stærð. Mér tókst að sannfæra konuna, að ekki væri fæð-
mgar að vænta í það sinn. Fósturlát engin, svo að mér sé kunnugt.
Keflavíkur. Læknis 27 sinnum vitjað, Aðalaðgerðir 2 tangarfæð-
ingar, tvisvar evacuatio abortus, einu sinn sótt fylgja (blæðing). Hér-
aðslæknis vitjað við 3 fósturlát. Þurfti hann í eitt skipti að slvafa
legið vegna lífshættulegrar blæðingar. Annað skipti gerði aðkomu-
læknir þá aðgerð við fósturláti konu í Sandgerði vegna lífshættulegrar
Wæðingar.
V. Slysfarir.
Slysfaradauði og sjálfsmorð á síðasta áratug teljast, sem hér segir:
1933 1934 1935 1936 1937 1938 1939 1940 1941 1942
Slysadauði .. 112 55 90 102 51 75 55 93 195 117
Sjálfsmorð .. 16 12 8 15 9 15 12 12 8 13
Slysfaradauði ársins reyndist miklum mun fátíðari en á næst liðnu
°venjulegu slysaári, en þó öllu meiri en mest gerðist fyrir styrjöldina.
Læknar láta þessa getið:
Kvík. Árið var afarmikið slysaár. Kvað sérstaklega mikið að um-
lerðaslysum. Drukknanir voru allmiklu færri en næsta ár á undan.
Stærsta sjóslysið var, er togarinn Jón Ólafsson fórst seint i október
a leiðinni frá Bretlandi til íslands. Með honum fórust 12 manns úr
héraðinu, en 13 alls. Á öðrum skipum erlendum óg' innlendum fórust
að minnsta kosti 5 menn úr héraðinu. í skipakvíum í Englandi
úrukknuðu 3 menn héðan úr bænum. Barn 5 ára gamalt drukknaði