Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1942, Side 98
í Elliðaánum nálægt rafmagnsstöðinni. Eins og þegar hefur verið tek-
ið fram, kvað mjög mikið að umferðaslysum í bænum á árinu, sem
stafaði frá hinni stórauknu umferð í sambandi við setuliðið. Minnsta
kosti 9 manns dóu beinlínis af umferðaslysum í héraðinu á árinu.
6 af þeim fengu fraet. cranii eða baseos cranii. 10 manns aðrir lét-
ust af beinbrotum eða afleiðingum þeirra. Þar af féllu 2 niður stiga
og fengu fract. baseos cranii. 1 maður frá Akureyri lézt hér eftir
flugslys. Af brunasárum dóu 3 konur. Þau fengu þær við að fara
ógætilega með benzín eða steinolíu. Barn 14 árs lézt skyndilega, og
var talið, að það hefði kafnað i rúmfötunum. Flest slysin, sem urðu
í landi, munu hafa verið tekin til meðferðar í sjúkrahúsum bæjarins,
einkum þau stærri, sérstaklega þó brotin. Einkum var það þó hand-
læknisdeild Landsspítalans, sem tók slasaða menn til meðferðar. Væri
um sinærri áverka að ræða, voru sjúklingarnir vanalega sendir heim
að lokinni aðgerð, annars lagðir í sjúkrahúsið. Slasaðir sjúklingar,
sem teknir voru til meðferðar í handlæknisdeild Landsspitalans og
sendir heirn að lokinni aðgerð, voru talsvert á 2. þúsund, en þeir, sem
lagðir voru í sjúkrahúsið vegna slysa nokkuð ú 2. hundrað. Ambus-
tiones 68, amputatio traumatic. digit. 8, commotiones cerebri 26,
corpora aliena 69, lux. acromialis claviculae 2, humeri 9, cubiti 1,
capituli radii 4, digiti inanus 8, menisci 3, patellae 1, tarso metatarsalis
2, ruptura corneae et sclerae 1, ruptura vaginae et perinei et fract. ped.
(2 ára barn) 1, vulnus lienis 1, sclopetarium 3. Fract. cranii v. baseos
cránii 14, maxillae 3, ossis nasi 8, mandibulae 4, scapulae 5, clavi-
culae 14, columnae 17, costae 7, humeri 23, humeri et lux. humeri 1,
supracondyli humeri 4, supraarticularis cubiti 1, olecrani 1, ante-
brachii 12, radii 25, radii & ossis nasi 1, ulnae 2, ossis metacarpi 3,
digiti manus 5, digiti manus complicata 9, pelvis 7, jielvis & mandÞ
bulae 1, colli femoris 13, femoris 13, patellae 2, cruris 14, cruris
coinplicata 3, tibiae 4, fibulae 13, malleoli 24, malleoli eoinplicata 1, ossis
metatarsi 3, dig'iti pedis complicata 1. Það verður að teljast til slysa,
að 2 menn í héraðinu biðu bana af völduin hermanna á árinu. Var
annað 12 ára drengur, sem var skotinn til bana af hermanni, sem
stóð á verði við herbúðir við Ingólfsstræti. Virðist sem hermaðurinn
hafi talið drenginn of nærgöngulan. Síðar var því lýst yfir af her-
stjórninni, að koinið hefði fram við rannsókn, að hermaður þessi
væri geðbilaður. Hitt var 35 ára gamall vélfræðingur, sem ók með
öðrum manni í bíl inn á hernaðarbannsvæði. Virðast þeir hafa mis-
skilið stöðvunarmerki, og var hann skotinn banaskoti af varðmanni.
Skipaskaga. 6 ára drengur varð fyrir bifreið á götu á Akranesi. För
hjól bifreiðarinnar yfir höfuð hans, og beið hann þegar bana.
Fractura cranii.
Borgarfí. Slys með fæsta móti. Kona datt af baki og braut fram-
handlegg (radius). Rifbrot 3. Kona, 82 ára, féll niður stiga og nijaðm-
arbrotnaði (fractura colli femoris). Var flutt á sjúkrahús og komst
á fætur aftur. Maður var á ferð í náttmyrkri ríðandi, hesturinn steig
út fyrir vegarbrúnina og fcll á hliðina, en maðurinn varð undir hon-
um með annan fótinn, og brotnaði sköflungurinn. 6 urðu fyrir bruna.
Tognun og mar 14. Sár 14. 17 ára piltur varð undir vagni, er hestur