Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1942, Page 100
98
Patreksjj. Maður 24 ára dó af afleiðingum skotsárs. Var háseti á
togaranuin Verði, þeg'ar flugvél gerði skotárás á hann úti á Hala. Fékk
vélbyssuskot ofan til í abdomen hægra megin, og kom skotið út hægra
megin við hrygg. Bundið um sárin til bráðabirgða og svo haldið til
Flateyrar. Sjúklingurinn lifði á 0. tíma, eða þar til komið var inn á
Önundarfjörð.
Bildudals. ,‘5(). se[>t. drukknuðu 2 ungir menn héðan frá Bíldudal.
Fóru í fiskiróður á opnuin vélbáti, en ofsarok skall á. Daginn eftir
fannst bátur þeirra á reki hér í firðinum, en mannlaus, og hafa lík
þeirra aldrei fundizt. Talsvert var um smærri slvs, svo sem bruna,
skurði, stungur, svo og nokkur minna háttar beinbrot. Enginn beið
bana af slysum þessum.
Hóls. Tvisvar sinnum fór úr axlarlið á sömu konu á árinu. Fraet.
typica radii 1, costae 1, claviculae 1. Nokkrar distorsiones.
ísafj. 2 menn drukknuðu, báðir í róðri. Féllu útbyrðis í stórsjó á
miðum úti. 1 maður fyrirfór sér með skoti. 4 menn slösuðust alvar-
lega af völdum sprenginga, þar af 8 menn í einu. Þeir voru að sprengja
við Hnífsdalsbryggju. Hvellhetta sprakk ekki, eftir að kveikt var í
lienni. Hélt formaður sprenginganna, að hún væri ónýt, og fór með
hana inn í herbergi með 2 öðrum mönnum til að athuga hana. Þá
sprakk hún og fleiri kassar af hvellhettum, sem þar voru inni. Allir
mennirnir fengu shoc.k og mikil meiðsli, sem þó flest voru grunn,
eftir ótal brot úr hvellhettunum. Á einum brotnuðu 2 fingur, en for-
maðurinn fékk hvellhettubrot í augun og varð alveg blindur af. Fjórða
sprengingaslysið varð, þegar vanur sprengingamaður fór til að
kveikja í sprengju, sem hann hélt sig hafa gleymt að kveikja í, þar
sem hún sprakk ekki jafnt og hinar. En þegar hann beygði sig niður
til að kveikja í þræðinum, sprakk sprengjan. í andliti og höndum
var fullt af smágrjóti og rusli, neðri kjálki var tvíbrotinn og vinstra
auga perforerað. Maðurinn missti sjón á auganu, en komst að öðru
leyti tit fullrar heilsu. Allir mennirnir voru samstundis flnttir á
Sjúkrahús ísáfjarðar og stundaðir þar að mestu.
Ögur. 1 dauðaslys á árinu. Maður að eiga við ótemju, hafði komið
á hana beizli og vafið taumunum um úlfliðinn. Þegar maðurinn datt,
tók óhemjan að rása, dróst maðurinn með, réð ekki við neitt og gat
ekki losað sig. Þegar að var komið, var hann dauður. Hauskúpan
brotin, og lá heilinn úti.
Hestegrar. Vulnera contusa 2, puncta 3, corp. aliena oculi 5, combus-
liones 2, distorsiones 2, fractura costae 1. Vulnus incisum 1 (saumuð
3 spor, og það voru öll nálspor ársins). Vulnus sclopetarium: 5. ágúst
1942 fannst V. G-son, 43 ára, Hesteyri, lig'gjandi í fjörunni við beit-
ingarskúrana á Hesteyri með skotsár á enni. Hann hafði nokkra rænu
og kvaðst hafa ætlað að skjóta kött, en kötturinn hafði sloppið. Aftur
á móti hafi hann sjálfur (slasaði) dottið um teinana og skotið lilaupið
úr byssunni, þar eð hún var spennt upp. Slasaði var fluttur til ísa-
fjarðar, og' kom í ljós, að kúlan hafði rennt sér á milli stórheilahelm-
inganna. Sjúklingurinn d. 24. s. m. Enginn vafi leikur á því, að um
sjálfsmorð var að ræða í augnabliksrugli. Eftir því sem ég kemst
næst, mun það liafa verið 5. júlí, að skothríð heyrðist úti fyrir Aðal-
t