Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1942, Síða 116
114
eyjarsýslu til starfsemi sinnar á árinu, og þá aðallega með sjúkra-
bifreiðarkaup fyrir augum.
7. Sængurkvennafélagið, Húsavík, starfaði sem fyrr.
8. Hjúkrunarfélag Desjarmýrarprestakalls, Borgarfirði eystra. Eng-
in greinargerð um félagið á árinu.
Heilsuverndarstöðvar.
1. Heilsuverndarstöð Regkjavíkur.
Berklavarnir. (Tölur síðasta árs í svigum): Árið 1942 voru
framkvæmdar /4572 (14354) læknisskoðanir á 7835 (7147) manns.
Tala skyggninga var 1290Í (12472). Annazt var um röntgenmyndar
töku 673 (756) sinnum. Auk þessa voru framkvæmdar 3402 (3284)
loftbrjóstaðgerðir. Berklapróf var framkvæmt á 1208 (1814) manns,
einkum börnum og unglingum. Enn fremur var annazt um 632 (778)
hrákarannsóknir. Auk fjölda ræktana úr hrákum, var 32 (59) sinuum
ræktað úr magaskolvötnum. Séð var um sótthreinsun á heimilum
allra smitandi berklasjúklinga, er til stöðvarinnar leituðu á árinu.
104 (108) sjúklingum var litveguð sjúkrahúss- eða heilsuhælisvist.
Skipta má þeim, sem rannsalcaðir voru í 3 flokka:
1) Vísað til stöðvarinnar og rannsakaðir þar í fgrsta sinn:
Alls 3286 (3257) manns, karlar 1110 (993), konur /403 Í1288),
börn (yngri en 15 ára) 773 (976). Meðal þeirra reyndust 174 (176),
eða 5,3% (5,4%) með virka berklaveiki. 25 (28) þeirra, eða 0,8%
(0,9%), höfðu smitandi berklaveiki í luiigum.
2) Þeir, sem voru undir éftirliti stöðvarinnar og henni því áður
kunnir að meira eða minna legti:
Alls 2040 (2177) manns, karlar 734 (585), konur 1210 (1020), börn
696 (572). Meðal þeirra fannst virk berklaveiki í 186, eða 7% (109,
eða 5%). 34 (17) sjúklingar, eða 1,3% (0,8%), höfðu smitandi
berklaveiki i lungum.
3) Þeir, sem stefnt hefur verið til stöðvarinnar vegna hópskoðana
í ýmsum stéttum:
Alls 1909 (1727) manns, þar af 158 (374) börn. Meðal þeirra fund-
ust 4 (8) með virka berklaveiki eða 0,2% (0,5%).
Ungbarnaverndin. Hjúlcrunarkonur fóru í 11106 vitjanir á
heimili til 906 barna, 350 eftirlitsferðir fyrir Sjúkrasamlag Reykja-
víkur til barnshafandi kvenna og 477 sjúkravitjanir á vegum heim-
ilishjúkrunar Líknar. Stöðin fékk 141 nýja heimsókn barna og 409
endurteknar heimsóknir. 90 barnshafandi konur leituðu stöðvar-
innar, þar af 38 í fyrsta sinn. 190 börn hafa notið ljósbaða á stöðinni
1343 sinnum. 234 börn voru bólusett gegn barnaveiki einu sinni og
136 tvisvar sinnum. Stöðin var lánuð í 18 skipti til kúabólusetningar,
sem Magnús Pétursson héraðslæknir lét framkvæma. Stöðin var
lokuð frá 7. febr. til 26. maí og frá 6. okt. til 20. okt. vegna mislinga-
faraldurs og viðgerðar á stöðinni. Siðan var eingöngu þeim börnum
leyfður aðgangur að stöðinni, sem höfðu haft inislinga. Heimsóknar-
dagar að viðstöddum lækni voru 4 sinnum í viku. Auk þess var opið
tvisvar í viku til bólusetningar gegn barnaveiki. Ungbarnaverndinni
voru gefin föt fyrir ca. kr. 730,00, sein stöðin útbýtti síðan.