Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1942, Síða 129
127
ið. Það þarf ekki heldur nema 1—2 kuldasumur til að drepa áhugann.
Berjataka eykst þó heldur.
Reykjnrfj. Fólk er hér vel klætt í góðuni innlendum fötum, en kven-
fólk er farið að klæðast gerviefnafatnaði úr kaupstöðunum. Matar-
gerð er fábrotin, hollur innlendur matur, en víðast of lítið um ný-
uietisneyzlu.
Btönduós. Fatnaður karla hefur tekið miklum breytingum til bóta,
kæði að því er snertir smekk, enda afkoma það batnandi, að menn
geta látið meira eftir sér í þeim sökum, og eins að fjölbreytni og henti-
senii, en það má þakka áhrifum frá auknu- íþróttalífi í bæjunum, eink-
um á sviði vetraríþrótta. Búnaður kvenna hefur tekið tiltölulega minni
breytingum til batnaðar og hefur ekki enn fengið hentugt og smekk-
fegt form við hæfi almennings og í samræmi við staðhætti. Matargerð
uiun og hafa verið að taka ýmsum breytingum til bóta, enda sækja
margar ungar stúlkur héðan kvennaskólann, sem er ágæt mennta-
stofnun fyrir húsmæðraefni. Áhugi almennings á manneldisfræði og
nasasjón af henni hefur og farið mjög í vöxt. Hænsnarækt hefur og
farið mjög í vöxt, og allmikið er selt af eggjum til Reykjavíkur.
Sauðárkróks. Fatnaður tekur litlum breytingum, en vinnufatnaður
niun nú yfirleitt hentugri en áður var. Fólk fær keypt nýmeti árið
um kring, og flestir munu rækta garðávexti til heimilisnotkunar. Er
allmikil garðrækt á Sauðárkróki.
Ólafsfj. Litil breyting þar á. Kjötneyzla sennilega með minna móti í
vetur vegna hins háa kjötverðs.
Höfðahverfis. Töluvert mikið var unnið af ull heima. Ganga inargir
héraðsmenn í ullarnærfötum og eins i band- eða lopapeysum. Matar-
gerð litlum breytingum tekið frá því, sem áður var, nema ef vera
skyldi, að nokkur heimili hafi notað talsvert af heilhveiti í brauð í
stað hins venjulega hveitis.
Rcykdœla. Fólk lifir mest á mjólkurafurðum, slátri, saltkjöti, kart-
öflum og kornvörú. Almennt nota menn allan kornvöruskammtinn,
og finnst mörgum hann of lítill. Það, sem helzt er að í þessu efni, er
uýmetisskorturinn og' vöntun á góðum kartöflugeymslum. Nauðsynlegt
væri að koma upp góðum grænmetisgeymslum og litlum hraðfrysti-
húsum fyrir neyzluvörur almennings í hverjum hreppi í afskekktum
sveitum.
Vopnafj. Heimilisiðnaði hefur áreiðanlega hnignað, svo sem vænta
má, er höndum þeim fækkar, sem að honum geta unnið eða vilja
vinna. Aukin peningavelta manna á meðal hefur leitt til meiri kaupa
í verzlunum á tilbúnum fatnaði auk margs annars miður nauðsynlegs.
Þó verður því ekki neitað, að aukin velmegun kemur nú einkum hjá
ýngri kymslóðinni greinilega fram í vandaðra og betra klæðnaði og
aukinni snyrtimennsku. Skófatnaður úr leðri mikið notaður, en gúm-
skófatnaður minna.
Scyðisfj. Mjög áberandi, hve fólk er betur klætt en áður. Algeng-
astur vinnufatnaður er hinn alþekkti „overalls", bæði á konum og
körlum. Ullarfatnaður er illfáanlegur og dýr. Matarræði mun mega
teljast allsæmilegt. Of lítil mjólk er í bænum. Oftast nægilegt nýmeti.