Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1942, Side 180
178
mikið af mjólk í lausu máli, en allar útsölurnar hafa stóra mjólkur-
geyma með sjálfvirkum mælitækjum, og þarf því aldrei að ausa mjólk-
inni upp. Öll er mjólkin gerilsneydd og frágangur á lienni hinn hrein-
legasti og bezti.
Höfðahverfis. Mjólkurframleiðsla mjög svipuð og í fyrra. Er mjólk
seld héðan úr héraðinu til Akureyrar vor- og sumarmánuðina.
Seyðisfj. Ekkert mjóllcursamlag er til. Mörg heimili í bænum hafa
lcýr, og flest selja eitthvað af mjólkinni til nábúanna. Lítið er seit af
injólk í bæinn frá sveitaheimilum. Meðferð mjólkur mun vera yfirleitt
allsæmileg.
Fáskrúðsfj. Kúahald í kauptúninu líkt og áður. Mjólk seld nokkuð
manna á milli, eftirlitslaust. Mjólkurskortur er hér alltaf nokkur að
haustinu.
Vestmannaeyja. Ekkert breytzt á árinu frá því, sem verið hefur.
Ódýrast fyrir bændur að selja mjólkina, eins og hún kemur úr skepn-
unni, og úr bví að þeir geta það, hví skyldu þeir jiá vera að kosta til
mjólkurhreinsunarstöðvar, sem kosta mundi stórfé? Tillögur heil-
brigðisnefndar um aukið mjólkureftirlit og hreinlæti við mjaltir og
umgengni í fjósum hafa ekki verið teknar til greina af bæjarstjórn.
Bændur segja, að eftirspurn eftir mjólk sé miklu meiri en framboðið.
7. Áfengisnautn. Kaffi og tóbak.
Læknar láta þessa getið:
Borgarfj. Mjög lítið ber á áfengisnautn neina á skemmtisamkomum.
Ein „samkoma“ skarar fram úr öllum öðrum í því efni, Þverárrétt.
Þar iná heita allsherjarfyllirí á hverju hausti, en þó vandræðalaust
oftast nær. Tóbaksnautn virðist fara vaxandi, en aftur mun draga
nokkuð úr kaffidrykkju.
Borgarnes. Áfengisnautn jió nokkur. Mikill siður nú vegna skömmt-
unar svokallaðrar, að menn eigi afmæli í tíma og ótíma, svo og haldið
upp á afmæli liverrar kerlingar, sem nær sjötugu og meira. Auðvitað
cr mikið, ef ekki mest, af þessu afmælafargani hreint „svindl“ til
þess að ná brennivíni úr einkasölunni. Auk þessa munu einhver brögð
liafa verið að því, að læki út frá hvoru tveggja setuliðinu. Landa hef
ég rétt aðeins séð, þann óálitlegasta, sem fyrir mín augu hefur borið.
Vindlingareykingar magnaðar, kaffi alls staðar, og hefur skömmtun
þar engin áhrif á.
Ólafsvíkur. Mikið notað af kaffi og tóbaki, en nautn áfengis ekki
mjög áberandi.
Stgkkishólms. Áfengisnautn svipuð og verið hefur. Helzt ber á henni
í sambandi við skemmtanir. Varla eru haldnir svo dansleikir eða úti-
skemmtanir að sumrinu, að eigi sé kvartað um, að ölvaðir menn hafi
verið þar með drykkjulæti eða óspektir. Hefur af þessu leitt, að lög-
regluvörðui' er hér við hverja skemmtun í vetur. Kaffi er drukkið
líkt og áður og tóbak notað eins og fyrr.
Bíldudals. Um nautnavörur þessar er fátt nýtt að segja, og er þeirra
neytt svipað og áður, og virðist okurverð þeirra engin áhrif hafa á
neyzluna. Nokkuð mun hafa borið hér á bruggi, sem að sögn er heldur